Anna Guðrún tekur alla Íslandsmeistaratitlana í U16 á Íslandsmóti ungmenna

Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir sýndi sterka frammistöðu á Íslandsmóti U16 síðustu helgi. Anna tók alla þrjá Íslandsmeistaratitla U16 og sló 2 Íslandsmet.

Íslandsmeistaratitlar sem Anna Guðrún vann á mótinu:

  • Sveigbogi U16 kvenna Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
  • Sveigbogi U16 Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir (keppni óháð kyni)
  • Sveigbogi U16 kvenna lið (Jenný Magnúsdóttir og Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir)

Íslandsmet sem Anna Guðrún sló á mótunum:

  • Sveigbogi U18 WA undankeppni kvenna 379 stig (var áður 360)
  • Sveigbogi undankeppni U16 kvenna lið 947 stig (var áður 935)
    BF Boginn Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir + Jenný Magnúsdóttir

Anna keppti einnig á Íslandsmóti U21 sem haldið var á sunnudeginum 5 febrúar þar sem hún tók bronsið í einstaklingskeppni í bæði sveigboga kvenna U21 og sveigboga U21 (keppni óháð kyni).

Íslandsmót ungmenna innanhúss 2023 var skipt niður í tvö mót sem haldin voru í Bogfimisetrinu. Íslandsmót U16/U18 sem haldið var á laugardeginum 4 febrúar og Íslandsmót U21 sem haldið var á sunnudeginum 5 febrúar. Samtals var keppnin sjálf lengri en 22 klukkutímar yfir þessa tvo daga, til viðbótar við tímann sem tekur að undirbúa og ganga frá. Því vildi BFSÍ koma sérstaklega á framfæri sínum þökkum til starfsfólks BFSÍ og öllum sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við hald mótsins fyrir vel heppnað mót sem gekk frábærlega í krefjandi aðstæðum.

Fjöldi keppenda á Íslandsmótum ungmenna er byrjaður að aukast aftur sem er jákvætt, en þátttaka er enn 9% lægri en var á síðasta Íslandsmóti ungmenna fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það er því að taka aðeins lengri tíma en áætlað var að koma þátttöku aftur í jafnvægi og fjölgun keppenda. 40 keppendur kepptu á mótinu að þessu sinni. Niðurstöður mótsins voru birtar í úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo og er hægt að finna á heimasíðu þeirra ianseo.net. Búið er að uppfæra niðurstöður og ranking lista í mótakerfi BFSÍ.

Sýnt var beint frá mótinu á Youtube rásinni Archery TV Iceland 

Niðurstöður mótsins er hægt að finna á úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo  og í mótakerfi BFSÍ 

Mögulegt er að finna myndir af mótunum á smugmug

40 titlar veittir og 18 Íslandsmet slegin á Íslandsmótum ungmenna um helgina