Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍF Akur Akureyri keppti á Íslandsmeistaramóti U18 í Fagralundi Kópavogi á laugardaginn.
Eva var efst í undankeppni ÍM U18 bæði í keppni um kvenna titilinn og titilinn óháð kyni með skorið 539. Sem er fínt skor, en ekki jafn flott og þegar hún var í þriðja sæti í undankeppni NM ungmenna í síðasta mánuði með skorið 571. Evu hefur farið mikið fram á síðustu árum og er án vafa fremsta U18 sveigboga Íslands. Eva stefnir mögulega á að taka þátt í stærri landsliðsverkefnum á næsta ári í fyrsta sinn.
Eva vann Íslandsmeistaratitil kvenna nokkuð örugglega á ÍM U18, en fékk sá mótspyrnu í keppni um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni. Þar mætti hún Elías Áka Hjaltasyni úr BFB Kópavogi í gull úrslitum, þar sem að Elías tók fyrstu lotuna 15-14 og 2-0 forystu. Það hefur þó greinilega bara verið hiksti í Evu þar sem hún fór strax í gang eftir það og tók næstu 3 lotur í röð 25-17, 28-16, 17-14, 2 stig fyrir hverja lotu og Eva tók því sigurinn og Íslandsmeistaratitlinn óháð kyni. Eva var ekki langt frá því að vinna alla titlana án þess að tapa stigi.
Þetta voru fyrstu Íslandsmeistaratitlar Evu í U18 flokki, en hún vann báða titlana í U16 flokki utandyra 2025, á síðasta ári sínu í U16 flokki.
Nánari upplýsingar um Íslandsmót ungmenna og öldunga er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:


