Alexandra Kolka Stelly Eydal Íslandsmeistari með millimeter til viðbótar við liða titil og Íslandsmet

Alexandra Kolka Stelly Eydal úr Akur á Akureyri vann tvo Íslandsmeistaratitla, tók eitt silfur og setti Íslandsmet í félagsliðakeppni í sveigboga U16 á Íslandsmóti ungmenna um helgina í Bogfimisetrinu.

Keppt er um þrjá Íslandsmeistaratitla í bogfimi

  • Félagsliða (óháð kyni)
  • Einstaklinga karla/kvenna
  • Einstaklinga (óháð kyni)

Í gull úrslitaleik sveigboga kvenna U16 mætti Alexandra Helgu Bjarney Ársælsdóttir úr Skaust Egilstöðum. Leikurinn var gífurlega jafn og endaði í jafntefli 5-5. Til þess að ákvarða sigurvegara þurfti því að beita bráðabana þar sem að einni ör er skotið og sá sem er nær miðju vinnur. Báðar stelpurnar skutu 10 sem voru nánast jafn nálægt miðju. En ör Alexöndru var um einum og hálfum millimeter nær miðju og hún tók því sigurinn og titilinn í sveigboga kvenna U16.

Í sveigboga U16 (óháð kyni) komst Alexandra í úrslitaleikinn og mætti þar Elías Áka Hjaltasyni úr Boganum í Kópavogi. Þar tók Elías sigurinn 6-0 og Alexandra tók því silfrið. Helga Bjarney Ársælsdóttir úr Skaust Egilstöðum tók bronsið.

Alexandra vann einnig Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni og setti Íslandsmetið í félagsliðakeppni fyrir Akur, ásamt liðsfélaga sínum Emilíu Eir Valgeirsdóttur. Metið var 919 stig.

Tveir Íslandsmeistaratitlar, einn af þeim unninn í bráðabana með millimeter og Íslandsmet. Eitthvað sem er hægt að vera stoltur af.

Mögulegt er að sjá gull úrslitaleiki einstaklinga í heild sinni hér: