Íþróttafélagið Akur á Akureyri sýndi flotta frammistöðu og á Íslandsmótum ungmenna um helgina og tók þrjá Íslandsmeistaratitla, 5 silfur og 3 brons ásamt því að slá Íslandsmet félagsliða.
Gífurleg aukning hefur verið í þátttöku hjá Akureyringum, sérstaklega í ungmenna flokkum. Akur kemur sterkt inn í Ólympískum sveigboga. Aukninguna er að miklu leiti hægt að rekja til þess að félagið fékk loksins æfingaaðstöðu aftur og því er mögulegt að æfa íþróttina á Akureyri á ný. Mörg “eldri” ungmenni sem hurfu úr íþróttinni þegar að Akur missti aðstöðu sína hafa einnig snúið til baka í íþróttina, en þó mun meira um ný ung andlit sem er alltaf góðs viti.
Einstaklings verðlaunahafar úr Akur á Akureyri:
- Ari Emin Björk
- Íslandsmeistari sveigboga U21 karla
- Brons sveigboga U21 (óháð kyni)
- Alexandra Kolka Stelly Eydal
- Íslandsmeistari sveigbogi U16 kvenna
- Silfur sveigbogi U16 (óháð kyni)
- Nanna Líf Gautadóttir Presburg
- Silfur sveigboga U18 kvenna
- Silfur sveigboga U18 (óháð kyni)
- Brons sveigboga U21 kvenna
- Emilía Eir Valgeirsdóttir
- Brons sveigboga U16 kvenna
Verðlaun sem Akur vann í félagsliðakeppni:
- Íslandsmeistari sveigbogi U16 félagslið
- Emilía Eir Valgeirsdóttir
- Alexandra Kolka Stelly Eydal
- Silfur sveigboga U16 félagslið
- Sigurbjörg Katrín Marteinsdóttir
- Eva Kristín Sólmundsdóttir
- Brons sveigboga U16 félagslið
- Ingibjörg Ólína Alfreðsdóttir
- Amý Elísabet Knútsdóttir
- Silfur sveigboga U21 félagslið
- Nanna Líf Gautadóttir Presburg
- Ari Emin Björk
Íslandsmet sem að keppendur Akurs settu á mótinu:
- Íslandsmet sveigbogi U16 félagslið – Akur 919 stig
- Emilía Eir Valgeirsdóttir
- Alexandra Kolka Stelly Eydal