![Noam Oli Stefansson - EM U21 bogfimi 2022](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2022/02/Noam-Oli-Stefansson-EM-U21-bogfimi-2022.jpg?resize=678%2C381&ssl=1)
Í Fréttablaðinu núna um helgina er heilsíðuviðtal við Nóam Óla Stefánsson um bogfimiiðkun hans og þátttöku í bogfimimótum. Hann er fyrsti trans einstaklingurinn sem keppt hefur fyrir Íslands hönd á alþjóðlegu íþróttamóti. Nánar tiltekið Evrópumeistaramótinu í bogfimi innandyra 2022. Með þessari þátttöku hans var brotið blað í íþróttasögu Íslands. Áhugaverð grein sem má finna hér. (Viðtalið er að finna á blaðsíðu 46 í pdf skjalinu).