Valgerður Einarsdóttir Hjaltested stóð sig mjög vel á árinu.
Það sem stóð helst upp úr hjá Valgerði á erlendum vettvangi 2026 var topp 10 niðurstaða hennar í einstaklingskeppni á EM innandyra í febrúar. Þar náði hún hæsta skori sem Íslendingur hefur náði í undankeppni EM inni í sveigboga 562 stig, vann sig upp í 16 manna úrslit og endaði í 9 sæti sem jafnaði hæstu niðurstöðu sem Íslendingur í sveigboga á EM í sögu íþróttarinnar. Valgerður stóð sig einnig flott á heimslistamótum á árinu (EM úti, Evrópubikarmótum og heimsbikarmótum) og náði að halda sér í topp 100 á Evrópulista.
Valgerður stóð sig líka frábærlega á innlendum vettvangi og vann Íslandsmeistaratitil kvenna innandyra í fjórða árið röð og yfirtók því lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna sem Marín Aníta Hilmarsdóttir átti áður 3 ár í röð innandyra. Sá titill Valgerðar innandyra var einnig hennar sjöundi Íslandsmeistaratitil kvenna í röð (ÍM innandyra og ÍM utandyra) sem er lengsta sigurröð Íslandsmeistaratitla í sveigboga í sögu íþróttarinnar. Sú 7 titla sigurröð Valgerðar brotnaði þó á árinu í júlí þegar að Marín tók kvenna titilinn utandyra og braut 3 ára sigurröð titla kvenna utandyra og 7 titla sigurröðin hennar Valgerðar. En í staðin braut Valgerður lengstu sigurröð Marínar um viðurkenninguna “Sveigboga kona ársins” sem Valgerður er nú að fá í fyrsta sinn. Sex ár í röð óbrotin sem Marín á, en Marín hafði hreppt viðurkenninguna frá því að viðurkenningin var veitt fyrst árið 2020. Valgerður vann einnig sinn tólfta (innandyra) og þrettánda (utandyra) Íslandsmeistaratitil félagsliða í röð með félagsliði sínu á árinu, sem er einnig í báðum tilfellum met sigurrraðir sem eru en í gangi.
Valgerður er því búin að skrifa sig í sögubækur íþróttarinnar með árangrinum (og skrifar enn). Til að sjá þetta betur fyrir sér settum við það upp í töflu:
- Lengsta sigurröð Íslandsmeistaratitla kvenna innandyra (4 ár í röð og enn í gangi)
- Lengsta sigurröð Íslandsmeistaratitla kvenna utandyra (3 ár í röð)
- Lengsta sigurröð Íslandsmeistaratitla kvenna í heild (7 titlar titlar inni og úti í röð)
- Allar sigurraðir Valgerðar í kvenna eru einnig lengri en lengust sigurraðir karla titla í íþróttinni
- Lengsta sigurröð Íslandsmeistaratitla félagsliða innandyra (6 ár og en í gangi)
- Lengsta sigurröð Íslandsmeistaratitla félagsliða utandyra (7 ár og en í gangi)
- Lengsta sigurröð Íslandsmeistaratitla félagsliða í heild (13 titlar inni og úti í röð og enn í gangi)
Þetta er í fyrsta sinn sem Valgerður hlýtur viðurkenninguna sveigbogakona ársins. Valgerður er 24 ára. https://archery.is/?s=valger%C3%B0ur
Sveigbogakona ársins
2026 Valgerður Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2025 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2024 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2023 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2022 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2021 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2020 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
Marín Aníta Hilmarsdóttir átti 6 ára sigurröð um titilinn Sveigbogakona ársins sem Valgerður Hjaltested braut í ár. Marín hefur hlotið viðurkenninguna öll árin frá því að viðurkenningin var veitt fyrst árið 2020, þó að Valgerður Hjaltested hafi lengi verið á hælum Marínar. En Valgerður náði að stinga sér framfyrir þetta árið með mjög sterkri frammistöðu á EM innandyra. Vala endaði með 4,940 stig og Marín með 4,562 stig í útreikningi fyrir árið 2026, sem er ansi lítill munur milli þeirra, eins og er oftast einnig Íslandsmótum þar sem keppnin um titilinn í sveigboga kvenna er nánast alltaf milli Völu og Marín og endar oftar en ekki í jafntefli og bráðabana þar sem samkeppnin er hörð.
| Ár | Marín | Valgerður |
| 2026 | 4.562 | 4.940 |
| 2025 | 4.336 | 3.892 |
| 2024 | 4.593 | 3.942 |
| 2023 | 5.176 | 4.280 |
| Stig í tölfræðilegum útreikningi | ||
En svo keppa Valgerður og Marín líka saman sem lið þar sem þær hafa verið óstöðvandi og hafa verið bráðabana frá því að vinna til verðlauna í liðakeppni á Evrópumeistaramóti, og hafa unnið alla Íslandsmeistaratitla félagsliða bæði innandyra og utandyra frá árinu 2020. Samtals 13 Íslandsmeistaratitlar félagsliða í röð saman, þó að þriðji liðsmaðurinn breytist reglubundið 😉








