Ari Björk átti flott ár 2026. Ari vann Íslandsmeistaratitil karla utandyra annað árið í röð og Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni í fyrsta sinn á Íslandsmeistaramótinu utandyra í júní.
Ari vann einnig öll Bikarmót BFSÍ utandyra 2026 og tók Íslandsbikarmeistaratitilinn utandyra 2026, í fyrsta sinn sem Ari hreppti þann titil á ferlinum og í fyrsta sinn sem karlmaður verður Bikarmeistari í sveigboga.
Ari náði einnig fínum árangri á EM innandyra þar sem hann endaði í topp 10 sætum bæði í blandaðri liðakeppni og liðakeppni karla og setti landsliðsmetið í blandaðri liðakeppni.
Þetta er annað árið í röð sem Ari hreppir titilinn sveigbogamaður ársins af BFSÍ. Ari er 21 árs gamall. https://archery.is/?s=ari+bj%C3%B6rk
Sveigbogamaður ársins
2026 Ari Emin Björk – ÍF Akur – Akureyri
2025 Ari Emin Björk – ÍF Akur – Akureyri
2024 Ragnar Þór Hafsteinsson – BF Boginn – Kópavogi
2023 Haraldur Gústafsson – SkAust – Egilstöðum
2022 Haraldur Gústafsson – SkAust – Egilstöðum
2021 Oliver Ormar Ingvarsson – BF Boginn – Kópavogi
2020 Dagur Örn Fannarsson – BF Boginn – Kópavogi




