Valgerður Einarsdóttir Hjaltested úr BFB í Kópavogi hafnaði í 30 sæti í sveigboga kvenna meistaraflokki á öðru Heimsbikarmóti innandyra á tímabilinu (Indoor World Series Stage 2), sem fór fram í Strassen í Lúxemborg 20-22 nóvember 2026
Undankeppni
Í undankeppni (18m) stóð Vala sig flott og skoraði 551 stig. Vala endaði í 27 sæti í undankeppninni, en aðeins topp 32 héldu áfram í útsláttarkeppni á heimsbikarmótinu.
Útsláttarkeppni
Í 32 manna úrslitum var Vala ekki sú heppnasta með andstæðing en þar mætti hún Casey Kaufhold frá Bandaríkjunum, sem var númer 1 á heimslista. Vala skaut fínt í leiknum (28-24-28), en Casey gaf fá færi á sér (30-28-29) og vann því leikinn 6-0. Vala var því slegin út og endaði í 30 sæti á heimsbikarmótinu.
Vert er að geta að Vala vann einnig þátttökurétt á fyrsta heimsbikarmótinu í Sviss í síðasta mánuði og er að byrja hækka á heimlista.
Stutt samantekt:
- Hvar: Heimsbikarmót 2 Strassen Lúxemborg (World Series GT Open)
- Hver: Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – BF Boginn Kópavogi
- Í hverju: Sveigboga kvenna meistaraflokki
- Gengi í undankeppni: 27 sæti í undankeppni með 551 stig (Topp 32 vinna þátttökurétt á mótið)
- Gengi í útsláttarleikjum: Slegin út í 32 manna úrslitum 6-0 af nr.1 í heiminum Casey Kaufhold frá Bandaríkjunum.
- Loka niðurstaða: 30 sæti


