Þórdís Unnur í 2 sæti á World Series Open U21 heimslista

Þórdís Unnur Bjarkadóttir sýndi glæsilega frammistöðu og þátttöku á innandyra tímabilinu í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery. Þórdís endaði í 2 sæti í trissuboga kvenna U21 á World Series Open heimslista af rúmlega 50 keppendum alþjóðlega eftir að öllum mótum í mótaröðinni var lokið. Stig úr mótaröðinni giltu einnig til ranking í fullorðins flokki og þar endaði Þórdís í 26 sæti af rúmlega 700 keppendum.

Vert er að geta að Anna María Alfreðsdóttir tók 1 sætið á heimslista og 5 af top 10 á World Series Open heimslista voru Íslenskar stelpur. Það er því ekki amalegt að 2 sætið af Íslendingum sé einnig annað sætið á heimslista mótaraðar heimssambandsins.

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023