Þórdís Unnur Bjarkadóttir með silfurverðlaun á Evrópubikarmóti ungmenna

Þórdís Unnur Bjarkadóttir átti glæsilega frammistöðu og endaði í 2 sæti í liðakeppni og 8 sæti í einstaklings keppni á Evrópubikarmóti ungmenna sem haldið var í Catez Slóveníu í síðustu viku. Ásamt því jafnaði Þórdís Íslandsmetið í útsláttarkeppni U18 kvenna á mótinu.

Í einstaklingskeppni stóð Þórdís sig frábærlega. Hún vann öruggann sigur í 16 manna úrslitum gegn Ítölskum keppanda 137-130 en var svo slegin út í 8 manna úrslitum af brons verðlaunahafa mótsins frá Króatíu 140-134 og endaði því í 8 sæti í einstaklingskeppni U21 á Evrópubikarmótinu.

Verðlaun í liðakeppni á Evrópubikarmótinu voru afhent byggt á niðurstöðum úr undankeppni (semsagt engin formleg útsláttarkeppni). Þar var Íslenska liðið í 2 sæti og hreppti því Þórdís ásamt liðsfélögum sínum Önnu Maríu Alfreðsdóttir og Freyju Dís Benediktsdóttir silfurverðlaunin á mótinu.

Mynd úr óformlegri útsláttarkeppni á mótinu, þar sem Ísland sló Ítalíu út en þar endaði Ísland einnig í 2 sæti

Þórdís er aðeins 15 ára gömul og hefði getað keppt í U18 flokki, en ákvað þess í stað að keppa í U21 flokki mótsins til þess að fylla í trissuboga kvenna U21 liðið (3 keppendur í liði). Þó að keppnin sé harðari í eldri aldursflokknum þá heppnaðist það vel og hún vann silfur með liðinu og komst í 8 manna úrslit í einstaklingskeppni.

https://bogfimi.smugmug.com/European-Youth-Cup-Cates-2023/i-4fjcM2F

Þetta er annað erlenda landsliðsverkefni sem Þórdís tekur þátt í en hún tók fyrst þátt á Norðurlandameistaramóti ungmenna árið 2022 þar sem hún vann Norðurlandameistaratitilinn í U16 liðakeppni. Þórdís verður áfram út í Slóveníu eftir Evrópubikarmótið til þess að keppa á Veronicas Cup World Ranking Event (mót fullorðinna) og er svo áætluð til þátttöku á  á Evrópubikarmóti ungmenna í júní og NM ungmenna í júlí á þessu ári.

https://bogfimi.smugmug.com/European-Youth-Cup-Cates-2023/i-bgf8N7r

Evrópubikarmót ungmenna (EBU) var haldið í Catez í Slóveníu 1-6 maí. Sex keppendur voru að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu í trissuboga.

Ýmsar staðreyndir um mótið:

  • 228 keppendur frá 24 Evrópuþjóðum voru að keppa á mótinu samtals ásamt 50 fylgdarfólki.
  • Keppt er í U18 og U21 flokki í trissuboga og sveigboga
  • Af 24 þjóðum unnu 13 þjóðir til verðlauna á mótinu.
  • Ísland vann ein verðlaun á mótinu í trissuboga kvenna liðakeppni U21 og endaði í 11 sæti m.v. heildar medal standings úr öllum keppnisgreinum.
  • Allir Íslensku keppendurnir komust í 16 liða og/eða einstaklings úrslit á mótinu.
  • Ísland átti flesta keppendur allra landa í trissuboga U21 kvenna 8 manna úrslitum (þrjár frá Íslandi, tvær frá Ítalíu og ein frá Lúxemborg/Króatíu/Hollandi)
  • Ísland var með 3 lið á mótinu:
    • Trissuboga U21 kvenna lið (3 kvk) : Silfur
    • Trissuboga U21 mixed team (1 kk + 1 kvk) : 6 sæti
    • Trissuboga U18 mixed team (1 kk + 1 kvk) : 5 sæti
  • Þetta er í annað sinn sem Ísland tekur þátt á EBU og er m.a. í fyrsta sinn á sem:
    • Ísland vinnur til liðaverðlauna
    • Ísland keppir um einstaklings verðlaun
    • Karl keppir fyrir Ísland á EBU
    • (það er mjög mikið af fyrsta árangri þar sem þetta er aðeins annað mótið sem Ísland tekur þátt)
  •  Íslandsmet sem slegin á mótinu:
    • Landsliðsmet U21 mixed team útsláttarkeppni 147 (var 137)
    • Landsliðsmet U21 mixed team undankeppni 1284 (var 1252)
    • Trissuboga U21 kvenna útsláttarkeppni var jafnað (Þórdís 137-137)
  • Myndir af mótinu er hægt að finna á smugmug BFSÍ

Næst á dagskrá hjá Íslenskum keppendum er Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik í Slóveníu sem hefst 11 maí. Seinna Evrópubikarmót ungmenna verður svo haldið 3-11 júní.