Sveinn Sveinbjörnsson úr Boganum Kópavogi varð um helgina elsti íþróttamaður til þess að vinna æðsta Íslandsmeistaratitil í nokkurri íþrótt. Sveinn kom sá og sigraði berboga flokkinn á Íslandsmeistaramótinu um helgina og tók bæði Íslandsmeistaratitil karla og Íslandsmeistaratitilinn óháðan kyni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sveinn vinnur Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki í íþróttinni. Það gerir hann að elsta íþróttamann í sögu íþróttarinnar, með miklum mun, til að vinna æðsta titilinn í sinni keppnisgrein. 59 var áður elsti íþróttamaður sem hafði unnið titil á æðsta stigi í bogfimi, en Sveinn er 20 árum eldri en sá 79 ára!! Það er sjaldgæft að íþróttmaður sem er yfir fimmtugu vinni æðsta titil í bogfimi, og oftast eru þeir helmingi yngri en Sveinn, eins og sjá mátti á andstæðingum hans um titilinn, sem voru taldir sigurstranglegri.
Sveinn er einnig, eftir því sem best er vitað, elsti Íslendingur í sögu Íslands til þess að vinna Íslandsmeistaratitil á efsta stigi íþróttar.
Sveinn vann sig upp í gull úrslitin karla og þar mættust Sveinn og Izaar Arnar Þorsteinsson (39 ára) úr ÍFA Akureyri. Leikurinn var gífurlega jafn og spennandi og endaði 6-4 þar sem Sveinn tók sigurinn í síðustu umferðinni. Hér er hægt að sjá úrslitaleik berboga karla:
Í keppni um berboga titilinn óháðan kyni vann Sveinn sig upp í gull úrslitaleikinn og þar mættust Sveinn og brons verðlaunahafinn á EM U21 2024 Baldur Freyr Árnason (16 ára) úr BFB Kópavogi. Þar tók Sveinn sigurinn 6-2 og tryggði sér annan Íslandsmeistaratitil sinn í meistaraflokki 79 ára ungur! Hreint út ótrúlegur árangur miðað við aldur. Hér er hægt að sjá úrslitaleik berboga óháðan kyni: