Skráning á Indoor Archery World Series fyrir Desember er hafin

Ekki var fært að halda formlegt mót í kringum mótaröðina í Nóvember en fyrir Desember hefur heilbrigðisráðuneytið veitt BFSÍ undanþágu frá núgildandi ákvæði um keppnir til að halda mót í Bogfimisetrinu.

Grundvöllur undanþágunnar er að bogfimi þarfnast ekki nálægðar við aðra né sameiginlegan búnað og er því hægt að viðhalda ströngum sóttvörnum á meðan mótinu stendur og er undanþágan háð því. Eins er hún háð því að reglur um takmarkanir verði ekki hertar né Landsspítali settur á neyðarstig.

Til að viðhalda þessum ströngu sóttvörnum verður mótinu skipt í fjórar lotur:

DagsetningDagurLotaByrjarEndar
19. DesemberLaugardagurFyrir hádegi09:0011:30
19. DesemberLaugardagurEftir hádegi FULLT13:0015:30
20. DesemberSunnudagurFyrir hádegi09:0011:30
20. DesemberSunnudagurEftir hádegi13:0015:30

Í hverri lotu verða að hámarki 8 keppendur og lokast fyrir skráninguna fyrir hverja lotu þegar hún er orðin full, það er því fyrstur kemur fyrstur fær.

Í nóvember tóku meira en 2.800 keppendur þátt í mótaröðinni frá 80 löndum víðsvegar um heimin.
Hægt er að sjá niðurstöður Nóvember hér.

Það er því tilvalið að nýta tækifærið og taka þátt í þessari einstöku mótaröð sem nær yfir allan heiminn.

Hafið í huga að keppendur sem ætla sér að keppa á keppnisstað þurfa líka að skrá sig á Wareos og velja Bogfimisetrið sem staðsetningu til að taka þátt í alþjóðlega mótinu. Mótið er skráð hjá heimssambandinu og því þarf ekki að skila inn mynd af skorblaði eða skotskífum eins og þegar keppt er utan keppnisstaðar en auðvitað verður það áfram valkostur.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um mótið í skráningarforminu.