Ragnar Þór með tvo Íslandsmeistaratitla og bráðabana frá þriðja

Ragnar Þór Hafsteinsson úr Boganum í Kópavogi vann Íslandsmeistaratitil karla og félagsliða á Íslandsmeistaramótinu í bogfimi um helgina.

Í keppni um Íslandsmeistaratitilinn í sveigboga karla mættust Ragnar og Oliver Ormar Ingvarsson liðsfélagi Ragnars. Ragnar sigraði leikinn 6-0 af miklu öryggi. Georg Rúnar Elfarsson úr ÍF Akri tók brons verðlaunin.

HAFSTEINSSON RÞ (BFB)
6 (26,27,26)
INGVARSSON OO (BFB)
0 (23,25,25)

Mögulegt er að horfa á úrslitin í sveigboga karla í heild sinni hér:

Ragnar komst einnig í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn óháða kyni (allra) og ekki var munurinn minni þar. Valgerður Einarsdóttir Hjaltested liðsfélagi Ragnars var andstæðingurinn í úrslitaleiknum og úrslitaleikurinn endaði jafn 5-5 og þurfti því bráðabana ör til þess að ákvarða hver myndi sigra og hreppa Íslandsmeistaratitilinn. Nær miðju vinnur, Ragnar skaut 7 og Vala skaut 9. Ragnar tók því silfrið þar og Marín Aníta Hilmarsdóttir tók bronsið.

HJALTESTED VE (BFB)
6 (29,27,27,26,25-T. 9)
HAFSTEINSSON RÞ (BFB)
5 (29,29,27,18,25-T. 7)

Mögulegt er að horfa á úrslitin í sveigboga (óháð kyni) í heild sinni hér:

Ragnar vann einnig Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni sveigboga á mótinu, en í liðinu með honum voru Valgerður Einarsdóttir Hjaltested og Marín Aníta Hilmarsdóttir. Þau sigruðu Boginn B liðið í úrslitaleiknum og ÍF Akur tók bronsið.

BF Boginn
6 (53,48,54,52)
BF Boginn (2)
2 (40,49,46,41)

Mögulegt er að horfa á úrslitin í sveigboga félagsliðakeppni í heild sinni hér:

Ragnar tók sér pásu úr íþróttinni um nokkuð skeið vegna anna í lífi og fjölskyldu, en hann vann Íslandsmeistaratitil innandyra árið 2022. Tveir titlar og eitt silfur, ekki amalegt fyrir fyrsta mót eftir langa pásu.