Marín Aníta Hilmarsdóttir í 4 sæti á EM aðeins bráðabana frá bronsverðlaunum

Marín Aníta Hilmarsdóttir úr BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hún endaði í 4 sæti í liðakeppni og 9 sæti einstaklingskeppni.

Marín komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Sveigboga kvenna liðið, sem Marín var partur af, var hársbreidd frá því að tryggja sér brons verðlaunin á EM í brons úrslitaleik sem endaði jafn 4-4 gegn Moldóvu. Bráðabana (shoot off) þurfti til þess að brjóta jafnteflið og ákvarða hvort liðið hreppti bronsið, en þar hafði Moldóva betur á síðustu örinni. Íslenska liðið endaði í 4 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í sveigboga kvenna. Brons úrslitaleiknum var streymt í beinni og hægt að sjá hann hér fyrir neðan.

Í einstaklingskeppni var Marín sleginn út í 16 manna úrslitum 6-0 af Anastasia Pavlova frá Úkraínu og Marín endaði því í 9 sæti í einstaklingskeppni,

Skondið sem gerðist fyrir Marín í undankeppni EM, það er erfitt að hitta þegar að mótsbúnaðurinn bilar og felur skotskífuna. Þetta gerðist fyrir Marín, en tíminn var stöðvarður, það var lagað og Marín fékk að skjóta sínum örvum óblinduð.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is