Halla Sól Þorbjörnsdóttir í 5 sæti á EM

Halla Sól Þorbjörnsdóttir út BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hún endaði í 5 sæti í liðakeppni og 17 sæti einstaklingskeppni.

Halla komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Sveigboga kvenna U21 liðið, sem Halla var partur af, var slegið út af EM í 8 liða úrslitum í leik sem endaði 6-2 gegn heimaþjóðinni Króatíu. Íslenska liðið endaði í 5 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í sveigboga U21 kvenna.

Í einstaklingskeppni var Halla sleginn út í 32 manna leikjum 6-0 af Kristina Druskova frá Slóvakíu og Halla endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni,

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is