Maria Kozak með silfur á EM

Maria Kozak úr SkotÍs Ísafirði, Súgfirðingur (Suðureyri við Súgandafjörð), var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu.

Maria komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga U21 berboga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Berboga kvenna U21 liðið, sem Maria var partur af, keppti í gull úrslitaleik EM þar sem þær mættu liði Bretlands. Stelpurnar stóðu sig vel og getustig beggja liða er sambærilegt þær bresku áttu bara betri dag. Leikurinn endaði 6-0 fyrir Bretlandi. Íslenska liðið tók því silfur á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í berboga kvenna U21. Gull úrslitaleiknum var streymt í beinni og hægt að sjá hann hér fyrir neðan.

Í berboga einstaklingskeppni U21 á EM var Maria sleginn út í 8 manna úrslitum gegn Isabel Plowman frá Bretlandi 6-2 og Maria endaði því í 8 sæti í einstaklingskeppni berboga á EM.

Pabbi Maria býr í Póllandi og keyrði 1000km til að koma Maria á óvart og fylgjast með úrslitunum í Króatíu.

Maria var einnig valin efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðar í janúar.

Maria Kozak efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðar 2023

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is