Máni Gautason í 17 sæti á EM

Máni Gautason Presburg úr ÍFA Akureyri var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hann endaði í 17 sæti einstaklingskeppni.

Máni var í 26 sæti í undankeppni EM og var sleginn út í 32 manna leikjum 6-0 af Jonas Molnar frá Austurríki og Máni endaði í 17 sæti í lokaniðurstöðum.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is