Georg Rúnar Elfarsson í 7 sæti á EM

Georg Rúnar Elfarsson úr ÍFA Akureyri var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hann endaði í 7 sæti í liðakeppni og 17 sæti einstaklingskeppni.

Sveigboga karla liðið, sem Georg var partur af, var slegið út af EM í 8 liða úrslitum í leik sem endaði 6-0 gegn Ólympíumeisturum Ítalíu. Íslenska liðið endaði því í 7 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í sveigboga karla.

Í einstaklingskeppni var Georg sleginn út í 32 manna leikjum 6-0 af Itay Shanny frá Ísreal og Georg endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni,

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is