
Freyja Dís Benediktsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi var valin í 5 efstu fullorðinna (17 ára og eldri) sem verður kosið um til Íþróttakonu Kópavogs.
Kosning stendur nú yfir og henni lýkur 4 janúar og öllum Kópavogsbúum kleift að kjósa á milli þeirra 5 efstu. Við hvetjum alla til þess að kjósa, frekari upplýsingar um kosninguna er hægt að finna á hlekknum hér.
Niðurstaða kosninganna verður síðan kynnt á Íþróttahátíð Kópavogs í íþróttahúsinu Smáranum, fimmtudaginn 11. janúar 2023 kl. 17:30, en þar verða jafnframt veittar viðurkenningar vegna íþróttaársins 2022.
Þar munu Þórdís Unnur Bjarkadóttir og Ragnar Smári Jónasson bæði úr Boganum munu taka við verðlaunum í ungmennaflokki (17 ára og yngri).
Áfram Freyja!!