Vor æfingarplan Langbogafélagsins Freyju (LF Freyja)
1. janúar 2026 – 30. apríl 2026
Innanhúsæfingar Freyju eru haldnar í Bogfimisetrinu (Dugguvogi)
Mánudagar: 19:00 – 21:00
Miðvikudagar: 19:00 – 21:00 (æft er með víkingafélaginu Rimmugýgi)
Laugardagar: 11:00 – 13:00
Verð fyrir fullorðins æfingar á mánuði: 13.000 kr (með þjálfara með alþjóðleg þjálfararéttindi, án á mánaðarkorts).
Verð fyrir ungmenna æfingar per önn (4 mánuðir): 40.000.kr (með þjálfara með alþjóðleg þjálfararéttindi, án mánaðarkorts).
Þessar æfingar eru bæði fyrir byrjendur á langboga en einnig þá sem hafa verið að skjóta áður.
Æfð verða undirstöðuatriðin í bogfimi og einnig lært að keppa, ekki þarf að koma með sinn eigin boga eða örvar þó við mælum með að fólk kaupa sinn eigin búnað sjálft.
Árgjaldið (Félagsgjaldið) er 6.000 kr.
Félagar í Freyju hafa:
Leyfi til að eiga boga.
Keppa á mótum hérlendis og erlendis.
Félagar í LF Freyju geta keypt mánaðarkort í Bogfimisetrið í gegnum Freyju með afslætti:
Mánaðarkort í Bogfimisetrinu á 8.500 kr. í stað 15.000 kr.
Mögulegt er að skrá sig í og/eða á æfingar félagsins í Sportabler hér:
https://www.abler.io/shop/ithrottafelagidfreyja/1
Hlökkum til þess að sjá ykkur
UPPLÝSINGAR UM FÉLAGIÐ
Langbogafélagið Freyja er staðsett í Dugguvogi 42, 104, Reykjavík (hét áður Dugguvogur 2).
Í stjórn Langbogafélagsins Freyju sitja eftir síðustu kosningar 2024.
Haukur Hallsteinsson Formaður
Gummi Guðjónsson Meðstjórnandi
Magnús Ásgeirsson Varaformaður
Síðasti aðalfundur félagsins var haldinn 16.03.2025 í Bogfimisetrinu kl: 21:00 og var boðaður hér á vefsíðu félagsins.
Eins og hefðin er þá er næsti aðalfundur boðaður strax eftir að síðasta lauk og næsti aðalfundur verður haldinn 15.03.2026 í Bogfimisetrinu kl. 21:00.
Árgjaldið í Langbogafélagið Freyju er 6.000.kr fyrir þá sem eru á 18 ári eða eldri. (þeir sem greiða árgjaldið eru fullir meðlimir og geta greitt atkvæði á aðalfundum og keppt fyrir félagið á mótum).
Kt: 470214-2280
Rn: 0331-26-004780
Með fyrirvara um villur.
Langbogafélagið Freyja
Allir félagsmenn og iðkendur félagsins skulu fylgja siðareglum ÍSÍ. Þeir sem stjórn LF Freyju telur að fari ekki eftir lögum eða reglum félagsins verður vikið úr félaginu og/eða meinuð aðild að félaginu í samræmi við lög þess. En “batnandi fólki er best að lifa” og þeir sem hafa bætt sína hegðun og siði (þar sem það er viðeigandi/mögulegt) má stjórn endurskoða að geti fengið aðild að félaginu að nýju.
LANGBOGAFÉLAGIÐ FREYJA Félagalög – Samþykkt aðalfundur 2025.03.16
