Það sem komið er af árinu 2018 er búið að tilkynna 46 Íslandsmet í gegnum skráninguna á bogfimi.is.
Þetta eru ekki öll met sem slegin voru á árinu 2018 þar sem skráningin var búin til og sett í loftið í Apríl á þessu ári, einnig er árinu ekki lokið enn. Metin eru líklega tvöfalt fleiri en voru tilkynnt í gegnum vefsíðuna.
Guðbjörg Reynisdóttir sló lang flest met á þessu ári með 18 Íslandsmet slegin í 3 aldursflokkum Opnum flokki, U21 og U18
Guðbjörg Reynisdóttir:
- 18 Íslandsmet í einstaklingskeppni opnum flokki, U21 og U18
- 2x Íslandsmeistari í opnum flokki einstaklinga
- GULL Norðurlandameistarmót Ungmenna Einstaklinga U21
- GULL Norðurlandameistaramót Ungmenna Liða U21
- Helsti árangur/afrek: Tvöfaldur Norðurlandameistari
Guðbjörg Reynisdóttir SJÁ ALLAR NIÐURSTÖÐUR ÁRSINS MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Guðbjörg Reynisdóttir
Íþróttafélagið Freyja
Berbogi Kvenna
Skor
Qualif rank
Final rank
Fjöldi keppenda
Íslandsmót Innanhúss
365
1
1
1
Aurora Open
365
1
1
2
Íslandsmót Utanhúss
491
1
1
2
Nordic Youth Championships U21
488
1
1
2
Stóra Núps Meistaramótið
453
1
1
1
Hrekkjavökumót Ungmenna 2018
461
1
1
1
IceCup Janúar
349
1
1
1
IceCup Febrúar
393
1
1
4
IceCup Mars
373
1
1
3
IceCup Apríl
400
2
2
4
IceCup Ágúst
414
1
1
1
IceCup September
465
1
1
1
IceCup Október
433
1
1
2
IceCup Nóvember 2017
261
1
1
1
IceCup Desember 2017
326
1
1
1
Íslandsmet listi
Íslandsmet ICECUP NÓV 2017 Opinn fl
261
Íslandsmet ICECUP NÓV 2017 U21
261
Íslandsmet ICECUP NÓV 2017 U18
261
Íslandsmet ICECUP DES 2017 Opinn fl
326
Íslandsmet ICECUP DES 2017 U21
326
Íslandsmet ICECUP DES 2017 U18
326
Íslandsmet ICECUP JAN 2018 Opinn fl
349
Íslandsmet ICECUP JAN 2018 U21
349
Íslandsmet ICECUP FEB 2018 Opinn fl
393
Íslandsmet ICECUP FEB 2018 U21
393
Íslandsmet ICECUP APR 2018 Opinn fl
400
Íslandsmet ICECUP APR 2018 U21
400
Íslandsmet Íslandsmót utanhúss 2018 Opinn fl
491
Íslandsmet Íslandsmót utanhúss 2018 U21
491
Íslandsmet ICECUP ÁGÚ 2018 Opinn fl
414
Íslandsmet ICECUP ÁGÚ 2018 U21
414
Íslandsmet ICECUP SEPT 2018 Opinn fl
465
Íslandsmet ICECUP SEPT 2018 U21
465
Alþjóðlegar medalíur
Norðurlandameistari 2018 U21
GULL
Norðurlandameistari 2018 U21 liðakeppni
GULL
Íslandsmeistaratitlar
Íslandsmeistari Utandyra 2018 Opinn fl Berbogi
OK
Íslandsmeistari Innandyra 2018 Opinn fl Berbogi
OK
World Ranking Barebow
ATH það er ekkert world ranking fyrir Berboga
Helsti árangur
Tvöfaldur Norðurlandameistari Ungmenna U21
5 Punkta listi til tilnefningar
Hefur keppt um eða unnið verðlaun á alþjóðlegum mótum.
JÁ
Hefur unnið að lágmarki 2 útslætti á alþjóðlegum mótum
JÁ
Hefur slegið Íslandsmet á tímabilinu.
JÁ
Hefur unnið Íslandsmeistaratitil á tímabilinu
JÁ
Er meðal 3 hæstu á heimslista fyrir Ísland.
NEI (Enginn heimslisti fyrir berboga)
4 af 4 mögulegum atriðum, tilnefning staðfest
JÁ
Eowyn Marie Mamalias sló 15 og Nói Barkarsson sló 16, sem eru allt töluverð afrek, enda voru þau öll tilnefnd til íþróttafólks ársins 2018.
Til upplýsinga fyrir framtíðina.
Árið 2019 verða enginn met talin gild nema þau séu tilkynnt í gegnum http://bogfimi.is/islandsmetaskra-i-bogfimi/ í síðasta lagi 30 dögum eftir að metið var slegið.
Það eru 3 ástæður fyrir því.
- Til þess að geta haldið utan um tölfræði um Íslandsmet
- Svo að það séu minni líkur á því að met séu tilkynnt eftir að það er búið að slá þau aftur.
- Svo að met verði ekki samþykkt sem eru lægri en eldri skor sem hafa verið skotin.
Það er verið að vinna í að skrifa upp reglugerðir í bogfimi. Við gerum ráð fyrir því að reglugerð um Íslandsmet verði sett inn á bogfimi.is 2019 http://bogfimi.is/log-og-reglur/
Hér fyrir neðan er hægt að sjá óstaðfesta reglugerð um Íslandsmet. (reglugerðin sem verður sett í gang 2019 verður mjög líklega þessi eða mjög lík þessari)
Íslandsmet:
Hægt er að slá Íslandsmet á mótum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði.
- Að mótið fari eftir reglum WA og BFSÍ.
- Að mótið sé tilkynnt til formanns BFSÍ að lágmarki 20 dögum áður en mót hefst.
- Landsdómari eða hærri dómaragráða dæmi á mótinu.
- Að skotsvæði sé í samræmi við reglur WA um uppsetningu vallar. (Book 2, chapter 7)
- Að rafrænar niðurstöður og skráning séu gerðar í samræmi við reglur WA um heimsmet.
Til staðfestingar á Íslandsmetum er nægilegt að vísa í rafrænar niðurstöður IANSEO af mótinu.
Hver sem er má tilkynna Íslandsmet í gegnum vefsíðu BFSÍ. BFSÍ tekur ekki ábyrgð á því að uppfæra Íslandsmetaskrá með metum nema metin hafi verið tilkynnt. Ef ekki er búið að tilkynna Íslandsmet 30 dögum eftir að móti er lokið telst metið ekki gilt.
Íslandsmet er hægt að slá í öllum aldursflokkum, fjarlægðum og skífustærðum sem keppt er í á Íslandsmótum. Nýtt íslandsmet þarf að vera amk 1 stigi hærra en núverandi met.
Einstaklingar sem mega keppa um Íslandsmeistaratitil í ákveðnum flokki geta slegið Íslandmet í þeim flokki.
Evrópu/heimsmet:
Sé um evrópumet og/eða heimsmet að ræða þarf að tilkynna það tafarlaust eftir lok móts til BFSÍ, ásamt upprunalegu skorblaði, eða afriti undirrituðu af dómara mótsins og vottum. Sjá nánar í reglubók WA um heimsmet.