Heimslistinn eða world ranking listinn eins og flestir kalla hann er listi yfir bestu bogamenn í heiminum, það er hægt að finna hann hér https://worldarchery.org/world-ranking til að sjá Ísland geturðu valið more filters, evrópu og valið íslenska fánann.
Hægt er að finna upplýsingar um hvernig world ranking kerfið virkar að mestu á Wikipedia, https://en.wikipedia.org/wiki/World_Archery_Rankings
Þetta er frekar löng og upplýsinga mikil grein og er gerð að mestu til að kynna heimslista stigin og reglurnar í kringum þær. Við hjá archery.is gerum ekki ráð fyrir því að þú munir þetta allt en það er mikið af áhugaverðum upplýsingum þarna og gott að geta flett þessum upplýsingum upp þegar manni vantar þær.
Í stuttu máli virkar það svona. Fjöldi keppenda á mótinu*Gæði keppenda*Tími frá lok móts*Lokasæti=Heimslistastig
Fyrir einstaklinga er það þessi reikniformúla = Fjöldi keppenda á mótinu * Fjöldi keppenda í top 50 á heimslistanum á mótinu * tíminn frá að mótinu lauk * sæti sem einstaklingur lendir í á mótinu.
Fyrir lið er þessi formúla = Fjöldi liða á mótinu * Fjöldi liða í top 16 á heimslistanum á mótinu * tíminn frá því að mótinu lauk * sæti sem liðið endar í mótinu.
Heimslista stig eru einungis gefin fyrir utandyra mót, og aðeins þeir einstaklingar og lið sem komast í útsláttarkeppnina á þeim mótum fá stig. 104 hæstu einstaklingarnir eftir undankeppnina (qualification) fara í útsláttarkeppnina og top 16 liðin eftir undankeppnina komast í útsláttarkeppnina.
Sem dæmi á síðast heimsmeistarmóti utandyra er fjöldinn af liðum og einstaklingum hér fyrir neðan.
WORLD CHAMPIONSHIP OUTDOOR | INDIVIDUALS | TEAMS | MIXED TEAM | COUNTRIES | ||||||||
RM IND | RW IND | CM IND | CW IND | RM TEAM | RW TEAM | CM TEAM | CW TEAM | RMT | CMT | COUNTRIES | ||
2011 | TORINO ITALY | 199 | 148 | 132 | 83 | 55 | 41 | 38 | 22 | 57 | 33 | 84 |
2013 | BELEK TURKEY | 146 | 115 | 102 | 78 | 37 | 32 | 27 | 18 | 46 | 35 | 69 |
2015 | COPENHAGEN DENMARK | 212 | 157 | 119 | 97 | 58 | 43 | 31 | 26 | 60 | 40 | 92 |
Þannig að það er mjög oft erfitt að komast í útsláttarkeppnina og fá stig á heimslistann sérstaklega á stór mótum. Sem dæmi á heimsmeistarmótinu í Danmörku 2015 í sveigboga karla voru 212 manns að keppa og komust 104 menn áfram í útsláttarkeppnina og 108 manns fengu engin heimslista stig. Í liða keppni sveigboga karla voru 58 lönd að keppa og 16 lið fengu heimslista stig og 42 lið fóru heim með ekkert 🙂
Aðeins 4 hæstu stigin sem einstaklingur eða lið hefur unnið sér inn á mótum teljast með. Þannig að ef þú keppir á 5 mótum og færð heimslista stig á þeim öllum verður heildar world rankingið þitt summan af 4 hæstu mótunum þínum. 5 mótið fer þá í bankann þinn og það kemur inn ef að eitt af hinum mótunum dettur út.
Til að útskýra hvern þátt af heimslista útreikningnum fyrir sig.
Byrjum á því að setja upp ímyndað mót, segjum að við vorum að keppa á móti í gær (tími=1) og það séu 50 manns að keppa í okkar flokki (Fjöldi=0,9), af þeim 50 í okkar flokki eru 6 í top 50 á heimslistanum (Gæði=2). Okkur gengur vel á mótinu og við lendum í 17.sæti eftir útsláttarkeppnina (Lokasæti=4). Þannig að heimslista stigin sem við fengum á mótinu eru= Tími frá lok móts*Fjöldi keppenda*Gæði keppenda*Lokasæti=Heimslistastig. Margföldum tölurnar saman 1*0,9*2*4=7,2
Stigin á heimslistanum eru alltaf skrifuð í þessu formi 0.000. Þannig að stigin sem við fengum eru 7.200 (persónulega finnst mér þægilegast að hugsa um þetta og tala um þetta sem sjöþúsund og tvö hundruð frekar en tala um sjö komma tvö stig)
Allavega hérna fyrir neðan er taflan sem ég notaði til að finna út stigin okkar í dæminu fyrir ofan.
Tími:
Tíminn frá því að mótið var haldið. Heimslista stigin gilda í 2 ár og svo detta þau út alveg. En einu ári eftir mótið þá detta heimslistastigin niður um 50%, undantekningin er að þau falla um 20% fyrir heimsmeistarmót, ólympíuleika og heimsálfumeistarmót). Afhverju tími? Af því að maðurinn sem var efstur á heimslista fyrir 4 árum og hefur ekkert skotið, æft eða keppt síðan þá er væntanlega ekki meðal þeirra bestu í dag 🙂
Þannig að mót sem er nýbúið væri með 1 stig, mót sem er árs gamalt væri með 0,5 stig sem færi í útreikninginn. Nema heimsmeistaramót, ólympíuleikar og heimsálfumót eins og EM myndi detta niður í 0,8 eftir ár í staðin fyrir 0,5. Ástæðan er ef því að þessi mót eru haldin einu sinni á 2-4 ára fresti, á móts við það að flest önnur mót eru haldin árlega, þess vegna detta heimslista stigin fyrir árlegu mótin um helming en stór mótin sem eru haldin sjaldnar falla bara um 20% eftir ár.
Fjöldi:
Segjir sig nokkurn veginn sjálft þeim mun fleiri sem er á mótinu þeim mun erfiðara er það. Útreikningurinn virkar svona út frá fjölda
Einstaklinga
|
Lið
|
Gæði:
Það segjir sig sjálft að þeim mun fleiri góðir eru að keppa á mótinu þeim mun erfiðara er að komast í hærra sæti þess vegna eru gefin fleiri heimslista stig til þeirra sem keppa á móti fleirum erfiðum andstæðingum. Hægt er að sjá listann um hvernig sá útreikningur virkar hér fyrir neðan.
EINSTAKLINGA FJÖLDI
|
LIÐA FJÖLDI
|
SÆTI:
Það ætti að vera augljóst að sá sem er í fyrsta sæti á að fá meira af stigum á heimslistann en sá sem er í 4 sæti. Hér fyrir neðan eru stigin sem maður fær eftir því hvaða sæti maður lendir í. Þeir sem tapa þegar 8 eru eftir er raðað upp eftir skorinu sem þeir töpuðu með, sem dæmi ef það eru 4 einstaklingar sem tapa og þeir töpuðu 7-1, 6-0, 6-2 og 7-5, myndi sá sem var með 7-5 lenda í 5 sæti þar sem hann var með flest stigin af þeim sem duttu út.
LOKASÆTI EINSTAKLINGS | LOKASÆTI LIÐS | ||
Loka sæti | Fjöldi stiga (fer í reikniformúlu) | Loka sæti | Fjöldi stiga (fer í reikniformúlu) |
1 | 20 | 1 | 25 |
2 | 17 | 2 | 21 |
3 | 14 | 3 | 18 |
4 | 12 | 4 | 15 |
5 sæti (sá datt út með hæstu stig) | 10 | 5 sæti (datt út með hæstu stig) | 13 |
6 sæti (sá datt út með næst hæstu stig) | 9,5 | 6 sæti (datt út með næst hæstu stig) | 12 |
7 sæti (sá datt út með næst lægstu stig) | 9 | 7 sæti (datt út með næst lægstu stig) | 11 |
8 sæti (sá datt út með lægstu stig) | 8,5 | 8 sæti (datt út með lægstu stig) | 10 |
9-16 sæti (allir sem tapa fjórða útslætti) | 7 | 9-16 sæti (öll lið sem tapa fyrsta útslætti) | 8 |
17-32 sæti (allir sem tapa í þriðja útslætti) | 4 | ||
33-56 sæti (allir sem tapa öðrum útslætti) | 2 | ||
57-104 sæti (allir sem tapa fyrsta útslætti) | 1 |
Heimslista stig er aðeins hægt að vinna sér inn á mótum sem standast kröfur um world ranking og hafa sótt um það til world archery. Hægt er að sjá hvernig það virkar í reglubókum world archery https://worldarchery.org/Rules.
Það er hægt að finna lista yfir heimslista mót á heimasíðu worldarchery.org undir flibbanum sem heitir world ranking. (ath stundum gleymist að setja mót inn á þennan lista sem eru samt world ranking, t.d eru Worldarchery Europe mjög latir við að tilkynna sín mót eins og European grand prix en þau eru samt world ranking mót og koma seint inn í listann)
Það eru ekki öll mót jöfn á heimslistanum og ekki allir flokkar jafn erfiðir.
Eins og þú ættir að vera búinn að átta þig á þá getur verið mismunandi hvað mikið af stigum þú færð á mismunandi mótum, eftir þessum breytum.
Núna getur þú farið út og reiknað sirka út hvað þú myndir fá af stigum á ýmsum mótum miðað við hvaða sæti þú gætir lent í miðað við þína getu.
Hérna fyrir neðan eru nokkur dæmi um mót og þáttöku í mismunandi flokkum á þeim mótum.
Fjöldi keppendar á World cup mótum árið 2016
RM IND | RW IND | CM IND | CW IND | RM TEAM | RW TEAM | CM TEAM | CW TEAM | RMT | CMT | COUNTRIES | ||
2016 | SHANGHAI CHINA | 120 | 95 | 79 | 68 | 28 | 23 | 16 | 15 | 25 | 25 | 47 |
MEDELLIN COLOMBIA | 85 | 58 | 43 | 31 | 20 | 14 | 9 | 4 | 17 | 12 | 36 | |
ANTALYA TURKEY | 230 | 161 | 78 | 70 | 55 | 37 | 16 | 15 | 50 | 23 | 81 |
Fjöldi keppenda á Evrópumeistarmótum síðustu 3 árum.
EUROPEAN CHAMPIONSHIPS OUTDOOR | INDIVIDUALS | TEAMS | MIXED TEAM | COUNTRIES | ||||||||
RM IND | RW IND | CM IND | CW IND | RM TEAM | RW TEAM | CM TEAM | CW TEAM | RMT | CMT | COUNTRIES | ||
2012 | AMSTERDAM NETHERLANDS | 107 | 73 | 76 | 45 | 32 | 20 | 22 | 12 | 30 | 20 | |
2014 | ECHMIADZIN ARMENIA | 103 | 74 | 57 | 39 | 31 | 19 | 14 | 9 | 29 | 19 | 41 |
2016 | NOTTINGHAM UK | 110 | 69 | 69 | 47 | 30 | 18 | 19 | 12 | 30 | 21 | 44 |
Fjöldi keppenda á European Grand Prix árið 2015 og 2016
EUROPEAN GRAND PRIX | INDIVIDUALS | TEAMS | MIXED TEAM | ||||||||
RM IND | RW IND | CM IND | CW IND | RM TEAM | RW TEAM | CM TEAM | CW TEAM | RMT | CMT | ||
2015 | BUCHAREST ROMANIA | 35 | 26 | 35 | 14 | 6 | 4 | 4 | 3 | 9 | 5 |
2015 | MARATHON GREECE | 155 | 93 | 34 | 12 | 30 | 20 | 4 | 2 | 26 | 4 |
2016 | SOFIA BULGARIA | 92 | 61 | 40 | 24 | 17 | 10 | 6 | 5 | 18 | 7 |