Heba, Vala og Freyja vinna fyrsta mótið í Bikarmótaröð BFSÍ

Það voru þrjár konur sem unnu bikarana í kynlausri keppni á fyrsta Bikarmóti BFSÍ 17 september.

Eftir að útsláttarkeppni var lokið voru lokaniðurstöður gull úrslita leikja eftirfarandi:

  • Heba Róbertsdóttir vann bikarinn í berboga 6-0 í úrslitum gegn Sölvi Óskarsson
  • Freyja Dís Benediktsdóttir vann bikarinn í trissuboga 138-134 í úrslita leik gegn Þórdís Unnur Bjarkadóttir
  • Valgerður Einarsdóttir Hjaltested vann bikarinn í sveigboga 6-4 í úrslita leik gegn Astrid Daxböck.

Heba, Freyja og Vala tóku litla bikara heim fyrir að vinna stakt bikarmót. Þau voru öll úr BF Boganum í Kópavogi.

Staðan í Bikarmótaröðinni byggist á niðurstöðum úr undankeppni Bikarmótana. Top 3 staðan í Bikarmótaröðinni er í dag:

Sveigbogi:

  1. Valgerður E. Hjaltested : 524
  2. Astrid Daxböck : 513
  3. Gummi Guðjóns : 505

Trissubogi:

  1. Freyja Dís Benediktsdóttir : 559
  2. Þórdís Unnur Bjarkadóttir : 517
  3. Matthildur Magnúsdóttir : 505

Berbogi:

  1. Heba Róbertsdóttir : 414
  2. Sölvi Óskarsson : 336
  3. Gummi Guðjóns : 268

Næsta mót í bikarmótaröðinni verður haldið 8 október og það er en mögulegt að skrá sig á það hér.

https://mot.bogfimi.is/