Það voru þrjár konur sem unnu bikarana í kynlausri keppni á fyrsta Bikarmóti BFSÍ 17 september.
Eftir að útsláttarkeppni var lokið voru lokaniðurstöður gull úrslita leikja eftirfarandi:
- Heba Róbertsdóttir vann bikarinn í berboga 6-0 í úrslitum gegn Sölvi Óskarsson
- Freyja Dís Benediktsdóttir vann bikarinn í trissuboga 138-134 í úrslita leik gegn Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Valgerður Einarsdóttir Hjaltested vann bikarinn í sveigboga 6-4 í úrslita leik gegn Astrid Daxböck.
Heba, Freyja og Vala tóku litla bikara heim fyrir að vinna stakt bikarmót. Þau voru öll úr BF Boganum í Kópavogi.
Staðan í Bikarmótaröðinni byggist á niðurstöðum úr undankeppni Bikarmótana. Top 3 staðan í Bikarmótaröðinni er í dag:
Sveigbogi:
- Valgerður E. Hjaltested : 524
- Astrid Daxböck : 513
- Gummi Guðjóns : 505
Trissubogi:
- Freyja Dís Benediktsdóttir : 559
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir : 517
- Matthildur Magnúsdóttir : 505
Berbogi:
- Heba Róbertsdóttir : 414
- Sölvi Óskarsson : 336
- Gummi Guðjóns : 268
Næsta mót í bikarmótaröðinni verður haldið 8 október og það er en mögulegt að skrá sig á það hér.