Heba Róbertsdóttir sýndi ótrúlega frammistöðu á Íslandsmeistarmótinu um helgina og tók þrjá Íslandsmeistaratitla (einstaklings, liða og para) og sló tvö Íslandsmet.
Í gull úrslitum berboga kvenna áttust við Heba Róbertsdóttir og Guðbjörg Reynisdóttir. Guðbjörg hefur unnið síðustu 11 Íslandsmeistaratitla í berboga kvenna í röð, Guðbjörg sló Íslandsmetið í undankeppni mótsins og var önnur hæst á World Series heimslista heimssambandsins 2023. Andstæðingur sem er ekkert lamb að leika sér við. Heba sigraði fyrstu lotuna 2-0 og Guðbjörg svaraði með því að taka lotu 2 og staðan því 2-2 í leiknum. Heba átti svo glæsilega umferð með 27 stig og tók lotu 3 og staðan því 4-2. Í síðustu lotunni skaut Guðbjörg 7-8-9=24 stig, Heba skaut 8-8 og þurfti því 9 stig til þess að sigra og skaut 9, tók lotuna, sigraði gull úrslitaleikinn 6-2 og endaði lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla í sögu íþróttarinnar! Birna Magnúsdóttir vann brons úrslitaleikinn 6-0 gegn Rakel Arnþórsdóttir.
Íslandsmeistaratitlar sem Heba vann á mótinu:
- Heba Róbertsdóttir – BF Boginn – Berbogi kvenna
- Berbogi kvenna félagslið – BF Boginn Kópavogi
Heba Róbertsdóttir, Astrid Daxböck og Birna Magnúsdóttir - Berbogi blönduð félagsliðakeppni – BF Boginn Kópavogi
Heba Róbertsdóttir og Gummi Guðjónsson
Heba tók einnig brons verðlaunin í berboga unisex (keppni óháð kyni). Þar sló liðsfélagi hennar Gummi Guðjónsson Hebu út í undanúrslitum 6-4, Heba vann svo brons úrslitaleikinn í unisex 6-0 við Svein Sveinbjörnsson.
Íslandsmet sem Hebu á mótinu:
- Berbogi blandað félagslið – undankeppni – BF Boginn 929 stig (metið var áður 849)
Heba Róbertsdóttir og Gummi Guðjónsson - Berbogi kvenna félagslið – undankeppni – BF Boginn 1153 stig (metið var áður 1052)
Heba Róbertsdóttir, Astrid Daxböck og Birna Magnúsdóttir
Heba var skráð til keppni á Evrópumeistaramót U21 í Tyrklandi í febrúar og var talin líkleg til þess að ná góðum árangri þar og líkleg til verðlauna. En EM var því miður aflýst vegna þjóðarsorgar í landinu eftir hörmunga sem gegnu yfir landið eftir jarðskjálftahrinuna fyrir skömmu. Heba verður því að bíða þar til á EM 2024 í Króatíu til að sýna sína takta á alþjóðlegu stórmóti.
Frekari upplýsingar um Íslandsmeistaramótið er m.a. mögulegt að finna hér:
- Íslandsmeistaramótið var haldið helgina 25-26 febrúar í Bogfimisetrinu í Reykjavík af Bogfimisambandi Íslands (BFSÍ).
- Niðurstöður mótsins í alþjóða skorskráninga kerfinu ianseo
- Livestream af úrslitum í berboga og trissuboga flokkum á laugardeginum
- Livestream af úrslitum í sveigboga og langboga flokkum á sunnudeginum
- Myndir af mótinu á smugmug
- Stök myndskeið af öllum úrslitaleikjum á Archery TV Iceland Youtube rásinni (eru í vinnslu þegar þetta er skrifað, koma út síðar)
- Og í fréttum frá BFSÍ hér fyrir neðan
Mikið um óvæntar niðurstöður á Íslandsmeistaramótinu um helgina