Heba Róbertsdóttir nær WA þjálfararéttindum stig 1

Heba Róbertsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi náði mati prófdómara á alþjóðlegu þjálfaranámskeiði stigi 1 um helgina eftir viku langt námskeið á vegum Alþjóðabogfimisambandsins (World Archery – WA), Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) og Ólympíusamhjálpinni (Olympic Solidarity – OS).

Heba fékk 17 af 20 mögulegum stigum í matinu sem samsvarar 8,5 í einkunn, en til þess að ná réttindum þurfti hún aðeins 12 af 20 stigum. Heba er ekki búin að stunda íþróttina lengi en hefur verið að leiðbeina undir handleiðslu reyndra þjálfara á sumarnámskeiðum BF Bogans og fékk brons á Norðurlandameistaramóti ungmenna. Heba var í miklu uppáhaldi hjá þjálfarakennara námskeiðsins.

Endanleg staðfesting og skírteini munu berast frá WA á næstu vikum eftir að skýrsluskilum og viðeigandi form hafa verið fyllt út. Alþjóðlegu þjálfararéttindin gilda í fjögur ár og svo er krafa um endurmenntun, líklega í formi uppbótarnámskeiðs, en ólíklegt að þess þurfi hjá þessum þjálfara þar sem áætlað er að hann muni taka þátt á stig 2 námskeiði World Archery sem áætlað er að verði haldið í ágúst 2023.

Þjálfaranámskeið stig 1 heimssambandsins World Archery (WA) var haldið af Bogfimisambandi Íslands í Bogfimisetrinu dagana 2-7 ágúst. Námskeiðið var haldið í samstarfi við ÍSÍ og Ólympíusamhjálpina (Olympic Solidarity (OS)) sem stendur undir meirihluta kostnaði námskeiðsins. Þjálfarakennari World Archery á námskeiðinu var Christos Karmoiris frá Grikklandi. Prófdómarar World Archery á námskeiðinu voru Christos og Guðmundur Örn Guðjónsson Íþróttastjóri BFSÍ sem þriðja stigs WA þjálfaramenntaður.

Frekari fréttir af námskeiðinu er hægt að finna á archery.is