Freyja Dís Benediktsdóttir alþjóðlegur þjálfari stig 1

Freyja Dís Benediktsdóttir í BF Boganum í Kópavogi náði mati prófdómara á alþjóðlegu þjálfaranámskeiði stigi 1 um helgina eftir viku langt námskeið á vegum Alþjóðabogfimisambandsins (World Archery – WA), Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) og Ólympíusamhjálpinni (Olympic Solidarity – OS).

Til að ná mati prófdómara á síðasta degi námskeiðsins þurfti Freyja að ná 12 af 20 stigum mögulegum. Freyja fékk 19,5 stig sem samsvarar 9,75 í einkunn næstum fullkomið skor. Þetta verður busy vika hjá Freyju þar sem hún er áætluð til þátttöku á EM ungmenna sem byrjar á mánudaginn næsta.

Endanleg staðfesting og skírteini munu berast frá WA á næstu vikum eftir að skýrsluskilum og viðeigandi form hafa verið fyllt út. Alþjóðlegu þjálfararéttindin gilda í fjögur ár og svo er krafa um endurmenntun, líklega í formi uppbótarnámskeiðs, en ólíklegt að þess þurfi hjá þessum þjálfara þar sem áætlað er að hann muni taka þátt á stig 2 námskeiði World Archery sem áætlað er að verði haldið í ágúst 2023.

Þjálfaranámskeið stig 1 heimssambandsins World Archery (WA) var haldið af Bogfimisambandi Íslands í Bogfimisetrinu dagana 2-7 ágúst. Námskeiðið var haldið í samstarfi við ÍSÍ og Ólympíusamhjálpina (Olympic Solidarity (OS)) sem stendur undir meirihluta kostnaði námskeiðsins. Þjálfarakennari World Archery á námskeiðinu var Christos Karmoiris frá Grikklandi. Prófdómarar World Archery á námskeiðinu voru Christos og Guðmundur Örn Guðjónsson Íþróttastjóri BFSÍ sem þriðja stigs WA þjálfaramenntaður.

Frekari fréttir af námskeiðinu er hægt að finna á archery.is