![20220717_162231](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2022/07/20220717_162231-scaled.jpg?resize=678%2C381&ssl=1)
Heba Róbertsdóttir í BF Boganum í Kópavogi hreppti tvö verðlaun á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) 2022 í Kemi Finnlandi síðustu helgi. Heba sló einnig Íslandsmetið í berboga kvenna U18 á mótinu.
Heba var í þriðja sæti í undankeppni berboga kvenna U18 og keppti á móti Julia Söderberg frá Svíþjóð í undanúrslitum. Þar fóru leikar 6-0 fyrir þeirri Sænsku og Heba tók bronsið. Í liðakeppni keppti Heba ásamt Viktoríu Fönn Guðmundsdóttir og Auðunn Andra Jóhannessyni gegn liði Svíþjóðar, þar hafði Svíþjóð einnig betur og Heba og liðsfélagar hrepptu bronsið á mótinu í liðakeppni.
Frekari fréttir af Norðurlandameistarmóti Ungmenna 2022 er hægt að finna á archery.is.