Haraldur komin aftur á toppinn og tók báða einstaklings Íslandsmeistaratitlana

Haraldur Gústafsson í Skotíþróttafélagi Austurlands (SkAust) kom sá og sigraði á Íslandsmeistaramótinu og tók Íslandsmeistaratitilinn í sveigboga karla og sveigboga (unisex, keppni óháð kyni).

Mynd af Haraldi akkúrat þegar að hann sleppir örinni í úrslitaleik. Örin og armar bogans hreyfast svo hratt að eftir verða bara drauga útlínur af þeim

Þetta eru fjórði og fimmti einstaklings Íslandsmeistaratitill sem Haraldur vinnur á sínum ferli. En hann tók sveigboga karla titlana utandyra 2020 og 2021 og sveigboga karla titilinn innandyra 2021. Mikil samkeppni hefur verið í sveigboga karla á síðustu árum og titlarnir hafa skipt um hendur á nánast hverju ári, oftar en ekki í jöfnum úrslitaleikjum sem enda í bráðabönum.

Íslandsmeistarar karla

Í gull úrslita leik sveigboga karla lék Haraldur við Izaar Arnar Þorsteinsson um titilinn. Þar vann Haraldur úrslitaleikinn 6-0 af miklu öryggi. Oliver Ormar Ingvarsson tók svo bronsið 6-2 gegn Alex Johnsson. Verðlaunahafar í sveigboga karla enduðu því eftirfarandi:

  1. Haraldur Gústafsson – Skaust – Egilstöðum – Gull
  2. Izaar Arnar Þorsteinsson – Akur – Akureyri – Silfur
  3. Oliver Ormar Ingvarsson – Boginn – Kópavogi – Brons

Vert er að geta að Haraldur tók innandyra titilinn 2021 og komst í gull úrslit 2022 en náði ekki að verja titilinn. Haraldur er því búinn að endurheimta titilinn aftur til Austurlands.

Izaar Arnar Þorsteinsson og Haraldur Gústafsson í úrslitaleik sveigboga karla að bíða eftir að skorskráningu ljúki fyrir fyrstu lotu og að völlurinn verði tilbúinn svo að næsta umferð geti hafist. Dómari í miðju sést gefa merki til starfsfólks á skotmarki

Í gull úrslita leik sveigboga (unisex/keppni óháð kyni) lék Haraldur um titilinn við Marín Anítu Hilmarsdóttir. Úrslitaleikurinn var mjög jafn og staðan var 4-4 þegar ein lota var eftir. Í síðustu lotunni skoraði Marín 27 og Haraldur 29, Haraldur tók því 2 stig fyrir sigurinn í þeirri lotu og þar með sigurinn í úrslitaleiknum 6-4 og tók fyrsta Íslandsmeistaratitilinn óháðan kyni. Unisex Íslandsmeistaratitlum (eða titlum óháðum kyni) var bætti við í byrjun þessa árs af BFSÍ, m.a. til þess að stuðla að keppni milli karla og kvenna í íþróttinni og til þess að gefa þeim sem eru hvorki skráðir sem karlar né konur í þjóðskrá færi á því að keppa (þriðja kynskráning í þjóðskrá kynsegin/annað). Því mætti segja að Haraldur sé fyrsti Íslandsmeistari í sveigboga allra (það þarf ekki að setja flokkun fyrir aftan s.s. karla, kvenna, unisex, þar sem allir Íslendingar gátu keppt um titilinn).

  1. Haraldur Gústafsson – Skaust – Egilstöðum – Gull
  2. Marín Aníta Hilmarsdóttir – Boginn – Kópavogi – Silfur
  3. Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – Boginn – Kópavogi – Brons
Marín Aníta og Haraldur í gull úrslita leik sveigboga unisex

Haraldur keppti einnig um titilinn í blandaðri félagsliðakeppni (1kk og 1kvk) með liðsfélaga sínum Guðný Grétu Eyþórsdóttir úr Skaust. En þar enduðu leikar í úrslitaleiknum 5-1 fyrir andstæðingnum úr Kópavogi BF Boganum. Haraldur og Guðný hrepptu því silfrið. Verðlaunahafar þarf voru eftirfarandi:

  1. BF Boginn – Gull – Marín og Oliver
  2. Skaust – Silfur – Haraldur og Guðný
  3. ÍF Akur – Brons – Rakel og Izaar
Oliver og Haraldur sýna drengskap og óska hver öðrum góðs gengis fyrir upphaf gull úrslitaleiksins í alþjóðlega hluta Íslandsmeistaramótsins

Einnig er vert að geta að Haraldur og Guðný slóu Íslandsmetið í blandaðri félagsliðakeppni 50+ í undankeppni Íslandsmeistaramótsins.

  • Sveigbogi blandað félagslið 50+ undankeppni – Skaust 1028 stig (metið var áður 1021)
    Haraldur Gústafsson og Guðný Gréta Eyþórdóttir

Tveir Bretar kepptu í alþjóðlega hluta Íslandsmeistaramótsins. Þegar að alþjóðlegir keppendur skrá sig til keppni á Íslandsmeistaramótum er sett upp sér keppni sem alþjóðlegir keppendur geta tekið þátt í. Það er gert þar sem að aðeins þeir sem hafa búið á Íslandi lengur en ár og eru skráðir í aðildarfélög BFSÍ geta keppt um Íslandsmeistaratitla. Því var sett upp alþjóðleg keppni í sveigboga karla (Recurve International Men). Verðlaunahafar þar voru:

  1. Oliver Ormar Ingvarsson – Iceland – BF Boginn – Gull
  2. Haraldur Gústafsson – Iceland – Skaust – Silfur
  3. Daniel Sanchez Pombrol – Great Britain – Peacock Archers – Brons

Báðir Bretarnir komust í undanúrslit mótsins þar sem Haraldur og Oliver slóu þá út. Bretarnir enduð því á að þurfa að keppa gegn hver öðrum um bronsið, á meðan Haraldur og Oliver keppt um gullið. En þar þurfti Haraldur að sætta sig við silfrið eftir 6-2 tap gegn Oliver um gullið.

Loka samantekt af árangri Haraldar á mótinu er því:

  • Íslandsmeistari í sveigboga karla
  • Íslandsmeistari í sveigboga (óháð kyni)
  • Silfur í félagsliðakeppni
  • Ein alþjóðleg silfurverðlaun
  • Íslandsmet öldunga í félagsliðakeppni

Glæsilegur árangur eftir 23 klukkustundir af keppni um helgina.

Frekari upplýsingar um Íslandsmeistaramótið er m.a. mögulegt að finna hér:

Mikið um óvæntar niðurstöður á Íslandsmeistaramótinu um helgina