Halla Sól Þorbjörnsdóttir Íslandsmeistari í sveigboga U21

Halla Sól Þorbjörnsdóttir vann 6-0 sigur í gull úrslitum sveigboga U21 gegn Melissu Pampoulie á Íslandsmóti ungmenna í byrjun febrúar.

Íslandsmeistaratitlar sem Halla vann á Íslandsmóti ungmenna:

  1. Sveigbogi U21 Halla Sól Þorbjörnsdóttir (keppni óháð kyni)
  2. Sveigbogi U21 kvenna lið BF Boginn (Melissa Pampoulie og Halla Sól Þorbjörnsdóttir)

Halla vann einnig silfur í sveigboga kvenna U21 þar sem hún var einnig að keppa á móti Melissu í gull úrslitum. Stelpurnar (Halla og Melissa) unnu svo Íslandsmeistaratitilinn í liðakeppni á mótinu líka.

Halla Sól var áætluð til þátttöku á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Tyrklandi í febrúar. En EM var því miður aflýst vegna hamfarana sem hafa verið í gangi í Tyrklandi síðustu vikur eftir að jarðskjálftahrina reið yfir landið.

Íslandsmót ungmenna innanhúss 2023 var skipt niður í tvö mót sem haldin voru í Bogfimisetrinu. Íslandsmót U16/U18 sem haldið var á laugardeginum 4 febrúar og Íslandsmót U21 sem haldið var á sunnudeginum 5 febrúar. Samtals var keppnin sjálf lengri en 22 klukkutímar yfir þessa tvo daga, til viðbótar við tímann sem tekur að undirbúa og ganga frá. Því vildi BFSÍ koma sérstaklega á framfæri sínum þökkum til starfsfólks BFSÍ og öllum sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við hald mótsins fyrir vel heppnað mót sem gekk frábærlega í krefjandi aðstæðum.

Fjöldi keppenda á Íslandsmótum ungmenna er byrjaður að aukast aftur sem er jákvætt, en þátttaka er enn 9% lægri en var á síðasta Íslandsmóti ungmenna fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það er því að taka aðeins lengri tíma en áætlað var að koma þátttöku aftur í jafnvægi og fjölgun keppenda. 40 keppendur kepptu á mótinu að þessu sinni. Niðurstöður mótsins voru birtar í úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo og er hægt að finna á heimasíðu þeirra ianseo.net. Búið er að uppfæra niðurstöður og ranking lista í mótakerfi BFSÍ.

Sýnt var beint frá mótinu á Youtube rásinni Archery TV Iceland 

Niðurstöður mótsins er hægt að finna á úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo  og í mótakerfi BFSÍ 

Mögulegt er að finna myndir af mótunum á smugmug

40 titlar veittir og 18 Íslandsmet slegin á Íslandsmótum ungmenna um helgina