Freyja Dís Benediktsdóttir með gull á heimslistamóti fullorðinna í Slóveníu

Freyja Dís Benediktsdóttir endaði í 1 sæti á Veronicas Cup World Ranking Event, ásamt liðsfélögum sínum Þórdísi Unni Bjarkadóttir og Önnu Maríu Alfreðsdóttir eftir yfirgnæfandi sigur í gull úrslita leik liða á mótinu gegn Lúxemborg 225-219

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-KFTvQ2T

Freyja var einnig að keppa í einstaklingskeppni á mótinu en þar endaði hún í 9 sæti eftir að vera slegin út í 16 manna úrslitum af Natale Paola frá Ítalíu 140-135. En vert er að nefna að Freyja var nægilega hátt í undankeppni mótsins til að sitja hjá í fyrstu útsláttum.

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-wKcTVXs

Freyja var efst í undankeppni Íslensku stelpana og keppti því ásamt liðsfélaga sínum Ragnari Smára Jónassyni í mixed team (blandaðri liðakeppni hæsti kk+kvk frá hverri þjóð). Þar var liðið slegið út í 8 liða úrslitum í mjög jöfnum leik gegn Slóvakíu 147-149. Freyja og Ragnar enduðu því í 5 sæti í blandaðri liðakeppni á mótinu.

Þannig að til að taka saman niðurstöður Freyju eins og sjá má í final rank dálkinum:

  • 1 sæti í liðakeppni (team)
  • 5 sæti í blandaðri liðakeppni (mixed team)
  • 9 sæti í einstaklingskeppni (individual)

Freyja sló bæði fullorðins og U21 Íslandsmetið í útsláttarkeppni trissuboga kvenna liða á mótinu í gull úrslita leiknum. Metið var áður 223 og er nú 225.

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-hcmprbb

Freyja hækkaði töluvert á heims- og Evrópulista og er nú í 146 sæti á heimslista og 55 sæti á Evrópulista trissuboga kvenna. Hún átti einnig hlut í því að hækka Íslenska trissuboga kvenna liðið 18 sæti á heimslista og 8 sæti á Evrópulista.

En vert er að nefna að aðeins eru gefin stig á heimslista á alþjóðlegum stórmótum fullorðinna í bogfimi og Freyja hefur mest verið að einbeita sér að ungmenna mótum. Eins og Evrópubikarmóti ungmenna í síðustu viku þar sem hún vann silfur í liðakeppni U21 og keppti í einstaklings brons úrslitaleiknum í U21

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-9NxLgNv

Freyja er næst áætluð til keppni á Norðurlandameistarmóti ungmenna í Noregi í júlí og Evrópubikarmóti ungmenna í Sviss í júní.

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-vCCJNGr

Veronicas Cup World Ranking Event er árlegt mót sem haldið er í Kamnik Slóveníu í samstarfi við Evrópska Bogfimisambandið. Að þessu sinni var keppnin sjálf 12-14 maí og sex keppendur frá Íslandi kepptu á mótinu. Samtals voru 291 þátttakendur á mótinu frá 85 þjóðum.

Mótið er meðal þeirra styttri sem fyrir finnast í fjölda daga sem gerir mótið mjög hagkvæmt fyrir keppendur, en fórnin er í staðin að keppnisdagarnir verða mun lengri. Sumir keppendur þurftu að keppa 12 klst á sama degi án hlés.

Veðrið var einnig mjög krefjandi á þessu ári en það rigndi eins og hellt væri úr fötu meirihluta mótsins. Grasvöllurinn breyttist í drullupolla á sumum stöðum og enginn slapp við að vera vel blautur og drullugur sama hve vel þeir voru klæddir og þó að þeir notuðu regnhlífar eða hlífðarfatnað.

Frekari upplýsingar er hægt að finna hér:

    • Nánari fréttir af mótinu og öðrum keppendum á archery.is og bogfimi.is
    • Myndir af mótinu er hægt að finna á smugmug BFSÍ
    • Beina útsendingu frá gull og brons úrslitum mótsins er hægt að finna hér
    • Úrslit mótsins í heild sinni er hægt að finna á ianseo.net