Freyja Dís Benediktsdóttir í 5 sæti á EM

Freyja Dís Benediktsdóttir úr BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hún endaði í 5 sæti í liðakeppni og 17 sæti einstaklingskeppni.

Freyja komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Trissuboga kvenna U21 liðið, sem Freyja var partur af, voru slegnar út í jöfnum og spennandi leik gegn heimaþjóðinni Króatíu í 8 liða úrslitum 219-221 Íslenska liðið endaði því í 5 sæti á EM og stelpurnar því ekki langt frá því að vera að keppa um verðlaun á EM. Á síðasta EM 2022 var trissuboga U21 lið kvenna einnig slegnar út í 8 manna úrslitum af Ítalíu og enduðu einnig í 5 sæti. Þeirra tími mun koma.

Í einstaklingskeppni trissuboga U21 á EM var Freyja slegin út í 32 manna leikjum gegn Martina Del Duca frá Ítalíu og Freyja endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni trissuboga U21 á EM.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í gær.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is