Finnbogi og Pétur kepptu um gull í berboga karla U16 á Íslandsmóti U16

Pétur Sverrisson og Finnbogi Davíð Mikaelsson kepptu um gull í berboga karla á Íslandsmóti U16 í dag.

Báðir strákarnir voru að keppa á sínu fyrsta Íslandsmóti.

Pétur vann öruggann sigur 6-0 í gull keppninni og vann Íslandsmeistaratitilinn í berboga U16.

Hægt er að sjá gull keppnina þeirra hér fyrir neðan

Mótið var haldið í Bogfimisetrinu, dugguvogi 2, Reykjavík.

Hægt er að finna úrslit af mótinu á ianseo.net og sjá livestream af gull keppnum og öðru á archery tv iceland rásinni á youtube.

Á sunnudaginn verður Íslandsmót U21 og 50+ haldið og hægt að fylgjast með því á ianseo.net og archery tv iceland rásinni á youtube.

Be the first to comment

Leave a Reply

Your email address will not be published.


*


Ert þú manneskja? * Time limit is exhausted. Please reload CAPTCHA.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.