Eydís Elide í 4 sæti á Evrópubikarmóti ungmenna

Eydís Elide Sartori úr BFB Kópavogi var að keppa á Evrópubikarmóti ungmenna í Ruse Búlgaríu í U18 flokki trissuboga kvenna. Þar sem hún endaði í 4 sæti í liðakeppni og 22 sæti í einstaklingskeppni. Ásamt því sló hún þrjú landsliðs Íslandsmet í liðakeppni mótsins.

Einstaklingskeppni trissuboga kvenna U18

Í einstaklingskeppni endaði Eydís í 22 sæti með 555 stig í undankeppni mótsins, enda góður gustur á mótinu. Eydís mætti því Elizabeth Basilici frá Ítalíu í 32 manna úrslitum. En lukkan elti Eydísi ekki að þessu sinni og hún átti óvenju lakann leik. Sú Ítalska tók því sigurinn 132-117 og Eydís endaði því í 22 sæti í lokaniðurstöðum mótsins.

Liðakeppni trissuboga U18 kvenna

Í trissuboga kvenna liðakeppni bættu stelpurnar okkar (Sóldís, Fjóla og Eydís) Íslandsmet landsliða í undankeppni mótsins með 1752 stig, en metið var áður 1670 stig og enduðu í 4 sæti.

Stelpurnar mættu Rús…. hehem liði hlutlausra íþróttamanna (AIN) í undanúrslitum þar sem stelpurnar bættu Íslandsmetið um 5 stig en það var ekki nóg til að taka sigurinn. Leikurinn endaði 222-186 og stelpurnar okkar héldu því í brons úrslit.

Í brons úrslitum mættu stelpurnar okkar Ítalíu. Sýnt var beint frá leiknum á Youtube rás World Archery Europe. Ítalska liðið skoraði 209 stig í undanúrslitum og því útlit fyrir að stelpurnar okkar gætu átt séns í bronsið. En Ítölsku áttu mjög góðan leik og tóku sigurinn 222-202. Ísland endaði því í 4 sæti í liðakeppni.

Nánari fréttir af mótinu er hægt að finna í frétta Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með 3 verðlaun á Evrópubikarmóti ungmenna