Ewa Ploszaj í 17 sæti á HM

Ewa Ploszaj í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á HM í bogfimi utandyra í Berlín Þýskalandi. Mótið var haldið 31 júlí til 6 ágúst.

Ewa endaði í 17 sæti ásamt liðsfélögum sínum Astrid Daxböck og Önnu Maríu Alfreðsdóttir í trissuboga kvenna liðakeppni. Liðið var slegið út af HM í 24 liða útsláttarkeppni gegn Ítalíu 222-190.

Í undankeppni einstaklinga endaði Ewa í 83 sæti og Ewa hélt því áfram í útsláttarkeppni HM (top 104 halda áfram eftir undankeppni). Þar mætti Ewa hinni Eistnesku Meeri-Marita Paas í fyrsta útslætti. Meeri hafði betur í leiknum og Ewa endaði því í 57 sæti einstaklinga á HM.

https://bogfimi.smugmug.com/HM-%C3%BAti-Berl%C3%ADn-2023/i-xNVNKjq/A

Nánari upplýsingar er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

17 sæti á HM