Eowyn Marie Mamalias með 2 silfur, 2 landsliðsmet og 2 Norðurlandamet á NM ungmenna

Eowyn Marie Mamalias tók einstaklings silfur og liða silfur í trissuboga kvenna U21 á Norðurlandameistaramóti ungmenna sem haldið var í Larvik Noregi síðustu helgi (30 júní-2 júlí). Til viðbótar við að setja tvö Norðurlandamet í liðakeppni og tvö Íslensk landsliðsmet.

https://bogfimi.smugmug.com/NUM-2023/i-fmRxRCr/A

Undanúrslitin (4 manna) voru ansi spennandi en þar mætti Eowyn landa sínum Freyju Dís Benediktsdóttir þar sem leikurinn endaði jafn 135-135 og þurfti bráðabana (ein ör nær miðju vinnur) til þess að ákvarða hver sigraði og færi að keppa í gull úrslitaleiknum og hvor myndi fara að keppa um bronsið. Eowyn hafði betur í bráðabananum með 10 stig á móti 9 frá Freyju.

Í gull úrslita leiknum var ansi mikill vindur sem sást greinilega á skorum Eowyn og andstæðingi hennar Livia Haals Wieth-Knudsen frá Danmörku. En Livia hafði betur í leiknum gegn Eowyn 103-97, þrátt fyrir að dómararnir hafi gert samlagningarvillu og tilkynnt Eowyn sem sigurvegara í leiknum. Danska tók því titilinn í einstaklingskeppni, Eowyn tók silfrið og Freyja tók bronsið. Það er hægt að sjá gull úrslitaleikinn á Archery TV Iceland youtube rásinni hér:

Eowyn ásamt liðsfélögum sínum Sámuel Peterson og Freyju Dís Benediktsdóttir voru efsta liðið í undankeppni og settu Norðurlandametið í trissuboga U21 liða undankeppni og útsláttarkeppni á NM ungmenna. Ásamt því að slá Íslenska landsliðsmetið í trissuboga U21 liðakeppni. En Danmörk hafði betur í gull úrslitaleik liða 215-207 og Eowyn hreppti því sitt annað silfur.

https://bogfimi.smugmug.com/NUM-2023/i-BBB83Zg/A

Samantekt af niðurstöðum og árangri Eowyn af NM ungmenna 2023:

  • Silfur trissubogi kvenna U21 einstaklinga
  • Silfur liðakeppni trissubogi U21 einstaklinga
  • Landsliðsmet trissuboga U21 lið undankeppni – 1923 stig
  • Landsliðsmet trissuboga U21 lið útsláttarkeppni – 207 stig
  • Norðurlandamet trissuboga U21 lið undankeppni – 1923 stig
  • Norðurlandamet trissuboga U21 lið útsláttarkeppni – 207 stig

Semsagt mjög árangursrík helgi hjá Eowyn, sem keppir með Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði.

https://bogfimi.smugmug.com/NUM-2023/i-Z4GdWpb/A

Nánari upplýsingar um Norðurlandamótið og gengi Íslands er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Fjórir Norðurlandameistarar, sjö Norðurlandamet og langur listi af öðrum verðlaunum/metum eftir sterka frammistöðu Íslands á NM ungmenna 2023