![20240309_100410](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2024/03/20240309_100410-scaled.jpg?resize=678%2C381&ssl=1)
Skaust á Egilstöðum kom í nýjum flottum félagsbúningum með þrjá keppendur á Íslandsmót U16/U18 í bogfimi sem haldið var um helgina.
Íslandsmót ungmenna byrja á undankeppni þar sem skotið er og skoraðar 60 örvar. Efstu fjórir keppendur eftir undankeppni halda svo áfram í útsláttarleiki. Allir þrír keppendur Skaust komust áfram í útsláttarleiki í öllum sínum keppnum.
Keppt er um tvo Íslandsmeistaratitla einstaklinga í bogfimi
- Einstaklinga karla/kvenna
- Einstaklinga (óháð kyni)
Verðlaun sem Skaust vann til á mótinu:
- Helga Bjarney Ársælsdóttir – Silfur sveigbogi kvenna U16
- Helga Bjarney Ársælsdóttir – Brons sveigbogi U16 (óháð kyni)
- Viren Reardon – Brons trissubogi U18 (óháð kyni)
- Manuel Arnar Logi Ragnarsson – Brons trissubogi U16 karla
Nokkuð gott holl fjögur verðlaun með 3 keppendur.
Helga Bjarney Ársælsdóttir var aðeins millimeter frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að gull úrslitaleikurinn hennar endaði í jafntefli og þurfti því bráðabana til að ákvarða sigurvegarann. En nánar er fjallað um það í þessari frétt: