Bogfimifélagið Boginn fékk hvatningarverðlaun íþróttaráðs 2023 fyrir frumkvæði félagsins í þátttöku kynsegin íþróttafólks í starfi félagsins. Þá fékk ungmennaflokkur Bogans viðurkenningu fyrir árangur.
Frost Ás Þórðarson, bogfimikvár úr Bogfimifélaginu Boganum veitti viðurkenninngu íþróttaráðs viðtöku á Íþróttahátíð Kópavogs.
Bogfimifélagið Boginn hefur lagt sig fram um að veita öllum iðkendum sínum jöfn tækifæri, sama hverjir eða hvað þeir eru og hlaut meðal annars viðurkenningu Jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogs árið 2023
Þess má einnig geta að Frost Ás er fyrsti og eini kynsegin aðili til að vera kosið í stöðugildi innan íþróttahreyfingarinnar samkvæmt tölfræði ÍSÍ, en Frost Ás er jafnframt iðkandi og keppandi í félaginu.
Boginn fékk einnig viðurkenningu fyrir eftirtektarverðan árangur í flokk ársins, ungmennaflokkur Bogans nánar tiltekið. Flokkurinn vann á árínu 2023 36 af 40 Íslandsmeistaratitlum utanhúss. Að auki slógu flokkarnir fjölda íslandsmeta bæði innan og utanhúss og stóðu sig framúrskarandi í erlendum keppnum. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem slík viðurkenning er veitt af Kópavogi.
Þeir sem tóku við viðurkenningum úr BF Boganum á íþróttahátíðinni.
- Taka við viðurkenningu íþróttaráðs vegna frumkvæðis í þátttöku hinsegin fólks
- Frost Ás Þórðarson
- Taka við topp 5 í vali íþróttakonu Kópavogs
- Freyja Dís Benediktsdóttir
- Tóku við hvatningarverðlaunum fyrir árangur 13-16 ára
- Baldur Freyr Árnason
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Kató Guðbjörns
- Tóku við skyldi fyrir hönd Bogans vegna eftirtektarverðs árangurs ungmennaliðs (U16/U18/U21).:
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir,
- Ragnar Smári Jónasson,
- Heba Róbertsdóttir,
- Valgerður Einarsdóttir Hjaltested
- Tóku við viðurkenningu vegna HM/EM/NM titla
- Marín Aníta Hilmarsdóttir Norðurlandameistari U21
- Patrek Hall Einarsson Norðurlandameistari U18
- Tóku við viðurkenningu fyrir HM/EM þátttöku
- Marín Aníta Hilmarsdóttir
- Astrid Daxböck
- Valgerður E. Hjaltested
- Oliver Ormar Ingvarsson
- Dagur Örn Fannarsson
- Ewa Ploszaj