Það verður ekki bara skotið upp fánum í Hafnarfirði í tilefni af 17. júní í ár því að mörgum örvum verður einnig skotið á loft þar í bæ. Bogfimifélagið Hrói Höttur mun standa fyrir bogfimikynningu á þjóðhátíðardaginn. Bogfimikynningin hefst kl. 14:00 með sýningu þar sem sýnd verður notkun á nokkrum mismunandi tegundunum boga. Í framhaldi af sýningunni verður gestum leyft að prófa bogfimi. Kynningin verður haldin við hliðina á verslunarmiðstöðinni Firði í miðbæ Hafnarfjarðar. Mikil hátíðarhöld verða á sama tíma í næsta nágrenni Fjarðar eins og sjá má á þjóðhátíðardagskrá Hafnarfjarðarbæjar.