Bogfimifélagið Boginn tekur trissuboga kvenna titilinn (Sara, Freyja og Ewa) gegn Bogfimifélaginu Hróa Hetti 227-221

Sara Sigurðardóttir, Freyja Dís Benediktsdóttir og Ewa Plozaj voru trissuboga kvenna lið Bogfimifélagsins Bogans á Íslandsmeistaramótinu í dag. Þar unnu stelpurnar með yfirburðum og frábæru skori 227 stig af 240 mögulegum.

Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í úrslitakeppni félagsliða á Íslandsmeistaramóti Innanhúss og stelpurnar því með Íslandsmet í trissuboga liða útsláttarkeppni. Félagsliðakeppni hefur verið partur af Íslandsmótum áður en hafa verðlaun almennt verið veitt byggt á skorum úr undankeppni.

Til að gefa hugmynd um hve gott skorið þeirra var þá er Evrópumetið í úrslitakeppni liða U21 er 233 stig frá EM 2017. Bæði Sara og Freyja eru U21 árs gamlar og munu báðar keppa á EM innandyra í febrúar 2022 og það verður spennandi að fylgjast með gengi Íslands þar. Það telst frekar gott að byrja á því að setja Íslandsmet félagsliða 6 stigum frá Evrópumeti landsliða í U21, þegar meirihluti keppenda í liðinu er U21.

Íslandsmeistaramótið er haldið 26-27 nóvember 2021 í Bogfimisetrinu Dugguvogi 2, Reykjavík. Keppt var í trissuboga og berboga flokkum í dag og á sunnudaginn mun keppendur í sveigboga keppast um sína titla.

Á Íslandsmeistaramótum er keppt í þrem bogaflokkum, trissuboga, berboga og sveigboga. Flestir keppendur keppa aðeins í einum bogaflokki og hægt að hugsa um muninn á milli þeirra svipað og  handbolta, körfubolta og blak. Þetta eru allt boltaíþróttir þar sem hendur eru notaðar en flestir stunda aðeins eina af þeim. Einnig halda tvö efstu lið í kvenna og karla áfram í gull úrslit og einnig tvö efstu blönduð lið keppa einnig í gull úrslitum (mixed team).

Hægt er að finna heildarúrslit, dagskrá og tengt mótinu í skorskráningarkerfinu ianseo hér á ianseo.net

Sýnt var beint frá úrslitum dagsins í dag á Archery TV Iceland youtube rásinni hér https://www.youtube.com/watch?v=tK-6bqokdM4 og einnig verður sýnt beint frá mótinu á morgun í sveigboga á sömu youtube rás.