Á mbl.is er fróðleg grein sem segir frá uppgötvun forleifa í helli í Frakklandi. Um er að ræða 54.000 ára gamla örvarodda, þetta eru elstu örvaroddar sem fundist hafa í Evrópu. Þetta er sönnun þess að bogar og örvar hafa verið notaðir í Evrópu í alla vegna 54.000 ár. Bogfimi í Evrópu er þannign 40 þúsund árum eldri en upphaflega var talið. Þó er vert að nefna að elstu ummerkin um bogfimi í Afríku nema um 70 þúsund árum. Ítarlegri grein á ensku um þennan fornleifafund má finna hér.