Birna Magnúsdóttir í 3 sæti á World Series Open innandyra heimslista

Birna Magnúsdóttir átti flott innandyra tímabil í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery. Birna endaði í 3 sæti í berboga kvenna á World Series Open heimslista af rúmlega 200 keppendum alþjóðlega eftir að öllum mótum í mótaröðinni var lokið.

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023