Bogfimifélagið Boginn í Kópavogi átti flesta þátttakendur allra íþróttafélaga á Norðurlöndum á Norðurlandameistaramót ungmenna (NUM) 2022 sem haldið var í Kemi Finnlandi síðustu helgi. Það sýndi sig einnig í árangri og félagið tók níu verðlaun á mótinu og kom með tvo Norðurlandameistaratitla heim á klakann.
Freyja Dís Benediktsdóttir og Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BF Boganum unnu einu Norðurlandameistaratitla Íslands á mótinu. En fjallað er meira um það í þessum fréttum á archery.is.
Valgerður E. Hjaltested vann brons á Norðurlandameistaramótinu 2022
Valgerður E. Hjaltested vann brons á Norðurlandameistaramótinu 2022
Valgerður Einarsdóttir Hjaltested sýndi einnig eina sterkustu frammistöðu á mótinu þar sem hún vann brons í fjölmennasta flokknum á mótinu og erfiðustu keppnisgreinni.
Valgerður E. Hjaltested vann brons á Norðurlandameistaramótinu 2022
Það kemur svo sem ekki mikið á óvart að BF Boginn hafi verið með mestan þátttökufjölda þar sem félagið er stærsta bogfimifélag á Norðurlöndum bæði eftir fjölda iðkenda og keppenda. Boginn var með 4 færri keppendum en öll Finnska þjóðin á heimavelli og á næsta NUM í Noregi 2023 er líklegt að BF Boginn verði með stærra lið en öll Finnska þjóðin.
Verðlaunahafar á NUM 2022 úr Boganum:
- Freyja Dís Benediktsdóttir BF Boginn – Gull í einstaklings og Silfur í liða
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BF Boginn – Gull í liða
- Ragnar Smári Jónasson BF Boginn – Silfur í liða
- Ísar Logi Þorsteinsson BF Boginn – Silfur í liða
- Valgerður E. Hjaltested BF Boginn – Brons í einstaklings
- Aríanna Rakel Almarsdóttir BF Boginn – Brons í liða
- Heba Róbertsdóttir BF Boginn – tvö Brons í einstaklings og liða
Niðurstöður keppenda Bogans sem unnu ekki til verðlauna að þessu sinni:
- Halla Sól Þorbjörnsdóttir 7 sæti í einstaklings og 8 sæti í liða
- Melissa Tanja Pampoulie 5 sæti í liða og 9 sæti í einstaklings
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir 7 sæti í einstaklings og liða
- Veigar Finndal Atlason 7 sæti í liða og 8 sæti í einstaklings
Vert er að geta að allir keppendur BF Bogans á þessu móti voru að keppa í fyrsta sinn á NUM erlendis. En vegna kórónuveirufaraldursins var NUM 2020 aflýst og NUM 2021 var haldið í fjarmótafyrirkomulagi, ein undankeppni í hverri þjóð og sameiginlegu úrslitin notuð til þess að ákvarða sigurvegar í það sinn.
Ísar, Ragnar og Freyja slóu einnig Íslandsmet í þriggja manna blandaðri liðakeppni á mótinu.
Frekari fréttir af Norðurlandameistarmóti Ungmenna 2022 er hægt að finna á archery.is.