Astrid Daxböck í 17 sæti á HM

Astrid Daxböck í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á HM í bogfimi utandyra í Berlín Þýskalandi í bæði trissuboga og sveigboga flokki. Mótið var haldið 31 júlí til 6 ágúst.

Astrid endaði í 17 sæti ásamt liðsfélögum sínum Önnu Maríu Alfreðsdóttir og Ewa Ploszaj í trissuboga kvenna liðakeppni. Liðið var slegið út af HM í 24 liða útsláttarkeppni gegn Ítalíu 222-190.

Astrid endaði í 35 sæti ásamt liðsfélögum sínum í sveigboga kvenna liðinu Marín Anítu Hilmarsdóttir og Valgerði E. Hjaltested.

Í trissuboga undankeppni einstaklinga endaði Astrid í 84 sæti og Astrid hélt því áfram í útsláttarkeppni HM (top 104 halda áfram eftir undankeppni). Þar mætti Astrid hinni Spænsku Andrea Munoz í fyrsta útslætti. Andrea hafði betur í leiknum og Astrid endaði því í 57 sæti einstaklinga á HM í trissuboga. Í sveigboga undankeppni einstaklinga endaði Astrid í 139 sæti.

Astrid átti einnig afmæli á æfingadegi HM 31 júlí og hélt upp á það með smá köku og að skoða risaeðlur eftir æfingu.

Nánari upplýsingar er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

17 sæti á HM