Ásborg Styrmisdóttir Íslandsmeistari, tvö silfur og Íslandsmet á ÍM

Ásborg Styrmisdóttir úr Aftureldingu á Reykhólum vann Íslandsmeistaratitil berboga U16 félagsliðakeppni ásamt liðsfélaga sínum Svan Gilsfjörð Bjarkason á Íslandsmóti ungmenna í bogfimi um helgina í Bogfimisetrinu. Ásborg og Svanur settu einnig Íslandsmetið í berboga U16 félagsliðakeppni á mótinu með skorið 905, en metið var áður 439 stig.

Eftir því sem best er vitað er þetta fyrsta Íslandsmet sem UMF Afturelding á Reykhólum slær í sögu félagsins, ásamt því að vera fyrsti Íslandsmeistaratitil félagsliða í sögu félagsins. Félagið var stofnað árið 1924 og verður því 100 ára í ár!!

Keppt er um þrjá Íslandsmeistaratitla í bogfimi

  • Félagsliða (óháð kyni)
  • Einstaklinga karla/kvenna
  • Einstaklinga (óháð kyni)

Ásborg komst í gull úrslitaleik berboga kvenna U16 og mætti þar Ragnheiði Íris Klein úr Hróa í Hafnarfirði. Þar byrjaði Ásborg sterk og tók 2 stig fyrir fyrstu umferðina, en Ragnheiður átti snéri því svo við og tók næstu 3 umferðir og sigurinn 6-2. Ásborg tók því silfrið í berboga kvenna U16. Heba Kruger Hallsdóttir úr Boganum í Kópavogi tók bronsið.

Ásborg komst einnig í gull úrslitaleikinn um titilinn í berboga U16 (óháð kyni). Þar mætti Ásborg aftur Ragnheiði úr Hafnarfirði og þar enduði leikurinn aftur 6-2 og Ásborg tók því sitt annað silfur á mótinu.  Svanur Gilsfjörð Bjarkason úr UMF Aftureldingu á Reykhólum tók bronsið.

Að vera sú fyrsta í 100 ára sögu íþóttafélags síns bæjarfélags til þess að vinna Íslandsmeistaratitil félagsliða, slá fyrsta Íslandsmet félagsliða og næstum búin að taka tvo einstaklings Íslandsmeistaratitla til viðbótar. Er hægt að gera neitt annað en að vera hryllilega stoltur af slíkum árangri?

Mögulegt er að sjá gull úrslitaleiki einstaklinga í heild sinni hér: