Anna María Alfreðsdóttir og Alfreð Birgisson bæði úr ÍF Akur á Akureyri munu keppa fyrir A landslið BFSÍ á HM í Yankton í Bandaríkjunum 19-26 september.
Hægt verður að fylgjast með úrslitum af mótinu á heimsíðu heimssambandsins hér og í úrslitakerfinu ianseo hér.
Anna er 18 ára á þessu ári og keppti einnig í U21 flokki á HM ungmenna fyrr á árinu í Póllandi og vann brons á Norðurlandameistaramóti ungmenna í U21 flokki í Júlí. Hún sló fyrir skömmu Íslandsmetin í bæði U21 undankeppni og útsláttarkeppni trissuboga kvenna. Anna er gífurlega efnilegur keppandi og skorar t.d. reglubundið yfir lágmarksviðmiðum fyrir Evrópuleika í trissuboga kvenna.
Alfreð keppti einnig á síðasta HM fyrir Ísland sem haldið var í s’Hertogenboch í Niðurlöndum 2019 þar sem hann stóð sig vel en náði ekki inni í lokakeppni HM (útsláttarkeppni) eftir undankeppni í það skiptið. Við áætlum að hann og Anna komist bæði áfram eftir undankeppni í lokakeppni (útsláttarkeppni) á HM að þessu sinni. Alfreð er einnig faðir Önnu Maríu.
Alfreð og Anna munu einnig keppa í “mixed team” eða parakeppni á mótinu.
Dagana áður en HM hefst mun heimsþing WA vera haldið. Haraldur Gústafsson varaformaður BFSÍ mun sitja þingið fyrir BFSÍ að þessu sinni en meira um það síðar.