Anna María Alfreðsdóttir í Íþróttafélaginu Akri á Akureyri keppti á HM í bogfimi utandyra í Berlín Þýskalandi. Mótið var haldið 31 júlí til 6 ágúst.
Anna endaði í 17 sæti ásamt liðsfélögum sínum Astrid Daxböck og Ewa Ploszaj í trissuboga kvenna liðakeppni. Liðið var slegið út af HM í 24 liða útsláttarkeppni gegn Ítalíu 222-190.
Anna skipaði blandaða lið Íslands á HM (mixed team 1kk+1kvk) ásamt liðsfélaga sínum og pabba Alfreð Birgisson. Þau enduðu í 39 sæti í blandaðri liðakeppni á HM.
https://bogfimi.smugmug.com/HM-%C3%BAti-Berl%C3%ADn-2023/i-2xfGP5G/A
Í undankeppni einstaklinga endaði Anna í 80 sæti og Anna hélt því áfram í útsláttarkeppni HM (top 104 halda áfram eftir undankeppni). Þar mætti Anna hinni Bandarísku Olivia Dean í fyrsta útslætti. Olivia hafði betur í leiknum og Anna endaði því í 57 sæti einstaklinga á HM.
https://bogfimi.smugmug.com/HM-%C3%BAti-Berl%C3%ADn-2023/i-WLfWV9V/A
Nánari upplýsingar er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér: