![IMG_3550](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2024/02/IMG_3550.jpg?resize=678%2C381&ssl=1)
Góð frammistaða Akureyringa var á Evrópumeistaramótinu í bogfimi í Króatíu í síðustu viku. Þeir tóku ein bronsverðlaun og voru ekki langt frá því að tryggja sér tvö brons verðlaun til viðbótar, í báðum tilfellum gegn Serbíu í meistaraflokki karla og kvenna.
Hér fyrir neðan er hægt að finna fréttir af keppendum á EM úr félögum á Akureyri (ÍFA Íþróttafélaginu Akur)
34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í gær.
Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is