Ísland er með nokkuð góða þátttöku á Norðurlandameistaramóti ungmenna sem haldið verður í Kemi Finnlandi 15-17 júlí næstkomandi. Samtals eru 15 keppendur að taka þátt fyrir Ísland sem er minnsta þátttaka sem Ísland hefur sent á Norðurlandameistaramót, en ef tekið er tillit til þess að Ísland er með einum fleiri keppendur en heimamenn í Finnlandi og með jafn marga keppendur og Noregur telst það nokkuð gott.
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft gífurleg áhrif á íþróttina og fall í þátttakendum á NUM hjá flestum Norðurlöndum hefur fallið um 50-70% miðað við tölur af þessu móti. En mun minna tap á iðkendum hefur verið innan BFSÍ. Þó að tap hafi verið á fjölda yngri keppenda þá hefur verið töluverður vöxtur í yngri iðkendum, sem gæti skilað sér í fleiri keppendum á NUM í framtíðinni.
Þrjú aðildarfélög BFSÍ eru að senda þátttakendur á mótið.
Úr BF Boganum í Kópavogi:
- Heba Róbertsdóttir – Berbogi U18 kvenna
- Freyja Dís Benediktsdóttir – Trissubogi U18 kvenna
- Halla Sól Þorbjörnsdóttir – Sveigbogi U21 kvenna
- Melissa Tanja Pampoulie – Sveigbogi U18 kvenna
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir – Trissubogi U16 kvenna
- Aríanna Rakel Almarsdóttir – Trissubogi U16 kvenna
- Valgerður E. Hjaltested – Sveigbogi U21 kvenna
- Ísar Logi Þorsteinsson – Trissubogi U18 karla
- Ragnar Smári Jónasson – Trissubogi U18 karla
- Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir – Sveigbogi U16 kvenna
- Veigar Finndal Atlason – Sveigbogi U18 karla
Úr BF Hróa Hetti í Hafnarfirði:
- Auðunn Andri Jóhannesson – Berbogi U18 karla
- Eowyn Marie Mamalias – Trissubogi U21 kvenna
Úr ÍF Akur á Akureyri:
- Viktoría Fönn Guðmundsdóttir – Berbogi U21 kvenna
- Anna María Alfreðsdóttir – Trissubogi U21 kvenna
Við gerum ráð fyrir góðri uppskeru af verðlaunum á mótinu og nokkrar framtíðarstjörnur að taka sín fyrstu skref í afreksstarfi.
Bogfimifélagið Boginn er stærsta bogfimifélag á Norðurlöndum og það sést skýrt á þátttökutölum. Boginn sendir 11 keppendur og Finnland sendir 14 keppendur á NUM í heimalandi sínu.
Mögulegt verður að fylgjast með niðurstöðum mótsins á ianseo.net. Og að sjálfsögðu í fréttum á archery.is 😆