![Heimir_vikingahatid2](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2019/06/Heimir_vikingahatid2.jpg?resize=678%2C381&ssl=1)
Víkingafélagið Rimmugýgur stendur árlega fyrir Víkingahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Hátíðin verður haldin 15. – 19. júní 2022. Á hátíðinni fara fram bardagasýningar, leikjasýningar, bogfimi, tónlist, handverk, opinn markaður, víkingaskóli barna og veitingar til sölu. Þeim sem hafa áhuga á að horfa á víkingabogfimi er bent á að á dagská hátíðarinnar er bogfimikeppni sem haldin verður kl. 16:00 laugardaginn 18. júni n.k.